Ég fór út að borða með krökkunum í bekknum mínum á föstudaginn og Jákup var heima með Kristinu. Það var tapas á boðstólnum. Þetta er í fyrsta sinn sem ég borða tapas og ég verð að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum. Það voru 8 réttir í boði, og þeir byrjuðu á því að tilkynna okkur að það væri takmörkun á tveimur af réttunum, maður mætti bara fá sér 2stk rækjur og 1 stk lax á kexi. Þá var ekki um margt að velja! Ég var alvarlega að hugsa um að skella í mig cheeseburger á leiðinni heim....:) En það var gaman að fara aðeins út! Ég varð þó fyrir smá áfalli þegar ég fór að máta föt til þess að fara í, því ég er ekki búin að missa síðustu kílóin enn, og það var allt eitthvað svo þröngt sem ég mátaði?:-/ Best að fara að herða sig í rassæfingunum! Það er erfitt að vera með svona góða matarlyst núna!
Í gær fór Jákup í partý og ég var heima. Við fundum þó lítið fyrir því, því hann fór svo seint af stað að við fórum bara fljótlega að sofa, og áður en við vissum af var hann kominn heim aftur:)
Í dag bauð Margrét Lára okkur og hinum læknanemunum í bollur og kaffi í tilefni bolludagsins. Það var virkilega huggulegt að hitta alla krakkana og Kristina Ósk sat til skiptis hjá öllum stelpunum. Ég held að henni hafi ekki þótt það leiðinlegt!

1 Comments:
Okkur fannst það allvega MJÖG skemmtilegt :)
Post a Comment
<< Home