Gleðilegt nýtt ár!!
Ég hef aldrei verið jafn sneydd þessum klassíska "áramótafílíng" eins og í gær. Þetta var bara eins og hver annar venjulegur dagur í mínum huga þangað til við keyrðum af stað til Marianna, og sáum alla spariklædda að flýta sér í matarboð, og flugeldum skotið upp hér og þar. Venjulega er ég á leiðinni í eitthvert partý, og er öll spennt fyrir því. En ég var sko meira en sátt við að þurfa að sinna litla krílinu og taka því rólega, ekki síst þegar það byrjaði að hellirigna upp úr miðnætti, og hélt áfram að rigna fram á nótt:-) Við vorum bara 4 heima hjá Maríönnu og hugguðum okkur, borðuðum góðan mat, spiluðum og spjölluðum saman. Jákup og Marianna skutu upp örfáum flugeldum, en við Kristina Ósk héldum okkur inni. Ég reyndi að standa úti í dyragættinni til þess að sjá herlegheitin, en Kristina Ósk varð bara hrædd og fór að gráta, þannig að við drifum okkur inn í hús.
Það sem stendur upp úr árið 2006 er skemmtileg ferð okkar Jákups, Kristins og Pálínu til London, æðislegt sumar á Íslandi bæði hvað varðar vinnu og dýrmæta reynslu, og alls tímans sem ég fékk með fjölskyldunni, óléttan og síðar biðin langa eftir fæðingunni, og svo Kristina Ósk! Við eignuðumst líka bíl í ár, alltaf að verða meira og meira fullorðin:) Jólin í ár voru líka eftirminnileg, það var gaman að kynna fjölskyldurnar fyrir hverri annarri. Og svo var æðislegt að hafa mömmu hjá okkur í heilan mánuð! Það var 1/12 af árinu, ef maður hugsar út í það;-) Ég gleymi heldur ekki að árið 2006 byrjaði með heljarinnar þynnku eftir áramótin, ég hef sjaldan verið jafn þunn eins og 1.jan 2006! Það í sjálfu sér ætti að vera nóg til þess að nenna ekki að skemmta sér á áramótunum næstu árin:-) hehe

2 Comments:
Gleðiilegt nýtt ár!
Ásdís
Gleðilegt ár!:)
Post a Comment
<< Home