Gleraugu og vegabréf
Búin að kaupa tvenn gleraugu! Ég byrjaði á því að fara í 2 dýrar verslanir og fann ein gleraugu sem komu til greina í hvorri búð. Önnur kostuðu ca.5000 og hin 3500kr á tilboði. Svo fór ég í gær í þriðju búðina, þar sem var tilboð, 2 fyrir 1. Ég fékk tvenn gleraugu fyrir 2600kr:-D Fór í sjónmælingu í dag, og nú bíð ég bara spennt eftir sms sem segja að gleraugun séu tilbúin! Jákup var ekki alltof hrifinn af öðrum gleraugunum, en ég og konan í búðinni vorum sammála um að ég yrði að fá þau! Þegar maður fær svona gott tilboð, þá er hægt að kaupa ein svolítið flippuð, ekki satt? Ég set þau þá bara upp þegar ég vill ekki að hann kyssi mig:-)
Við erum einnig búin að panta vegabréf handa Kristinu. Ég var spurð að því hvenær tengdaforeldrar mínir eiga afmæli til þess að sanna að hún sé dóttir mín. Ég varð nánast stressuð yfir því að geta kannski ekki svarað! (Fyrir tilviljun átti tengdapabbi afmæli í gær, og ég er nýbúin að heyra kennitöluna hennar tengdamömmu, hehe.) Konan leit líka niður í vagninn til þess að bera hana saman við passamyndina. Persónulega finndist mér erfitt að gera það þegar barnið sefur í vagninum! Börn á þessum aldri líta öll eins út í annarra manna augum þegar þau liggja og sofa. Skrítinn þessi heimur, þegar maður þarf að gera svona ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að fólk ræni annarra manna börnum, eða sínum eigin!
Ég er búin að skrá mig á yoga námskeið fyrir konur eftir fæðingu, og skrá Kristinu í ungbarnasund. Það er þó smá biðlisti í sundið, þannig að ég veit ekki hvenær það losnar pláss.
Svo missti ég mig svolítið með visakortið í netbúðum með barnaföt. Það var janúarútsala:)
Hehehe, nóg að gera í að eyða peningum þegar maður er heimavinnandi!!:-D

14 Comments:
HAHAHAHAHA já það getur verið hættulegt að vera í "fríi". Þá bara hefur maður ósjálfrátt meiri tíma til að versla og meiri tíma til að hugsa um hvað mann "vantar".
En jafnvel þó ég vinni og vinni og vinni þá eigum við aldrei pening :) amk ekki til að geta safnað! Mér finnst ég aldrei eyða neinu :(
Kv Helga Dröfn
p.s til hamingju með nýju gleraugun :) Jákup á pottþétt eftir að venjast þessum flippuðu.
HD
Já, ég ætti að drífa mig aftur í skólann;) Göngutúrarnir mínir liggja líka alltaf í gegnum bæinn -mjög hættulegt! Það verður gott þegar við erum ekki námsmenn lengur...ahhhhh:-D
Ohh, mig langar líka í ný gleraugu! :( Ég á aldrei pening til að eyða, það er kraftaverk ef ég á fyrir mat allan mánuðinn. Vonandi tekst mér einhvern veginn að koma málunum þannig í lag að ég geti leikið mér soldið í sumar.
Þið verðið að láta mig vita um leið og þið hafið eitthvað ákveðið varðandi sumarið. *pot í bumbu*
Þarf ég ekki að fara að huga að því að sækja um vinnu, eða er það ekki eins mikið stress svona á sumrin þarna eins og hér?
Dóra...
P.s. Vá, ég var að commenta á tvö önnur póst hjá þér og steingleymdi að kvitta undir. *roðn*
Hehe, ég var að reyna að giska á hver ætti hin kommentin, gott mál!:)
Þú verður bara að hringja í mig og við ræðum sumarið! Þú getur róleg farið að skoða vinnu, ég veit ekki hversu mikið stress það er. Ég held að það sé ekkert svo mikið stress. Ég þekki nokkrar sem hafa verið að vinna í heimahjálp, ég get spurt þær. En þú getur komið hingað hvernig sem fer með okkur, annað hvort býrðu hér ein eða með okkur:)
Hlakka til að sjá flippuðu gleraugun! Það er mjög gott að eiga til skiptana þegar maður verður pirraður á þeim sem maður er alltaf með. Láttu mig vita það!
Smá forvitni en vegabréf útgáfa hvers lands,(það eru svo mörg í kringum ykkur :), fór fram á það að þú vissir afmælisdag tengdó? Og nákvæmlega hvað sannar það ;)
En við erum einmitt á leiðinni að fara með drengina í vegabréfs leiðangur niður í sendiráð. Mér skilst að við þurfum ekki einu sinni að koma með mynd, það er bara öllu reddað á staðnum.
Haukur
Ég sótti bara um danskt vegabréf fyrir hana, hún er jú danskur ríkisborgari og ég hef ekki hugsað mér að breyta því eins og er. Þá getur hún fengið SU þegar hún verður stór:)
Það verður fyndið ef við verðum beðin um vegabréf á leiðinni heim! Eitt íslenskt, eitt færeyskt og eitt danskt!:-)
Getur hún ekki bara verið með einn ríkisborgararétt? Þ.e í Danmörku. Ég veit að hérna á Íslandi geturðu verið með fleiri - en ég heyrði af frænku minni sem býr í Köben og á danskan mann að hún ætlaði ekki að sækja um danskan því þá yrði hún að gefa upp þann íslenska.
Helga Dröfn
P.s maður á ekkert meiri pening þó maður sé að vinna - þá eyðir maður bara meira í einhverja vitleysu :D
Reyndi að posta hérna kommenti fyrr í dag en það kom greinilega ekki í gegn, amk sé ég það ekki.
Eru Danmörk og Ísland ekki með samning um tvöfaldan ríkisborgararétt?
Ég veit að Svíþjóð og Ísland voru að taka upp svona samning svo í síðustu viku bættust við þrír góðir Íslendingar - Jonni bróðir og strákarnir hans tveir :)
Það að vera með tvöfaldan ríkisborgararétt þýðir að þeir eru með íslenska kennitölu og þal minna mál að komast að á leikskóla/í skóla og eins til læknis. Kann samt ekkert á þetta ;)
Samkvæmt vísindavefnum :) þá mega Íslendingar hafa tvöfaldan rikisborgarrétt en þar var tekið dæmi þess að bæði Danmörk og Noregur gera það ekki. Þannig að ef þú ert með danskan og sækir um Íslenskan þá fellur sá danski niður og öfugt. Þannig að strákarnir okkar fá danskan við það að fæðast hér en um leið og við sækjum um íslenskan þá dettur hann út. En við erum ákveðin í að hafa þá íslenskaríkisborgar :)
Haukur
P.s tekið með fyrirvara.
Það var eins og ég hélt, að Danir leyfa ekki tvöfaldan. En kannski er það að breytast, aldrei að vita. Ég er bara ekki búin að kanna það. Og við höfum í rauninni ekkert rætt þetta enn:) Kannski breyti ég seinna...
Takk fyrir upplýsingarnar!:-)
Enda yrðuð þið náttúrulega að rífast um það hvort Kristina Ósk ætti að vera með danskan og íslenskan eða danskan og færeyskan - dáldið flókið HAHAHa
Kv Helga Dröfn
Færeyingar eru danskir ríkisborgarar:) Einfaldar málið örlítið. Einnig verð ég víst að taka til baka það sem ég sagði um vegaréfin, því Jákup er með danskt vegabréf. Færeyingar mega velja hvort þeir fá danskt eða færeyskt;-)
Post a Comment
<< Home