Ég er komin með brjóstaþoku (eða hvað þið nú kallið það:) á háu stigi. Man ekki stundinni lengur neitt sem mér er sagt og allt eru því nýjar fréttir fyrir mér! Alltaf gaman sem sagt, slúðrið verður aldrei gamalt:-) En það sem verra er, er að ég er alltaf 3mín of sein til að svara viðeigandi við hinar ýmsu aðstæður! Ég held að maður þurfi að venjast því að fókusinn sé fyrst og fremst á barnið, svo alla aðra...eða þá ég er svona slow:-)
Ég var að skoða ný gleraugu í dag. Ég er að tryllast úr útlits-breytingar-þörf. Langar að lita á mér hárið og fá ný gleraugu. Það er svo miklu fljótlegra en að losna við þennan björgunarhring sem virðist ekkert vera að fara! Og þegar ég fór í ræktina um daginn til þess að kaupa kort og taka fyrsta skrefið að átakinu mikla, ráðlagði þjálfarinn mér að bíða í nokkrar vikur því líkaminn væri ekki tilbúinn. Gott og blessað ef bara hugurinn væri ekki mörgum vikum á undan áætlun:( Ég ætla líka að bíða með hárlitunina aðeins lengur. Allt of mikið af eiturefnum. En fyrir skírn samt, hehe! Já, og ekki getur maður keypt ný föt fyrr en björgunarhringurinn er farinn! (hann verður sko ekki látinn vera til frambúðar). Ég tók til í skápunum mínum í gær og sorteraði fullt af fötum frá sem ég ætla að gefa í genbrug. Þá varð enn augljósara hvað mig langar í (ekki vantar, hihi) ný föt! En varðandi gleraugun er ég að skoða í nokkrar búðir og reyna að vera ekki allt of spontan svona einu sinni:)
Annars er snúllan algjört yndi og við höfum það svo huggulegt hérna heima. J er í fríi í næstu viku og byrjar svo í klinik í Svendborg næstu 8 vikurnar. Það verður svolítið skrítið að hafa hann ekki jafn mikið heima og við erum vanar. Þá fer hann eldsnemma af stað alla daga, en við erum vanar að hafa hann hjá okkur til 10 eða 12 flesta daga.
Bara tæpur mánuður þangað til mamma kemur í heimsókn!

2 Comments:
Njótið þið hans bara þangað til - svo líður þetta hratt og hann verður aftur hjá ykkur eins og áður :)
Hafið það sem allra best, Helga Dröfn
Hihihi, kjánaprik. Þú mátt vera slow og rugluð, þá kannski fær allt vitlausa fólkið í kringum þig að fíla sig gáfað í smá stund. :)
Post a Comment
<< Home