Dóttir mín
sefur ekki nema ofan á mér, í fanginu á mér, eða á brjóstinu.... Það er erfitt að koma einhverju í verk þegar svo er! Í hvert sinn sem hún er sofnuð í fanginu á okkur, og við reynum að leggja hana í vögguna sína, vaknar hún eftir 3 mín og starir á okkur stórum augum. Á nóttinni sefur hún uppí hjá okkur. En það gerir ekkert til, hún er yndisleg:-)
Ég hef aldrei hlegið jafn mikið að neinum eins og henni, hún setur upp þá furðulegustu svipi! Og hún brosir til okkar þegar við syngjum lög sem hún þekkir. Gaman að þessu:-D

4 Comments:
Hehe:)
Inga svaf upp í allar nætur hjá okkur fyrstu 2 mánuðina:) Við týmdum ekki að hafa hana í vöggunni, þannig að ég skil þig vel. Hún vill auðvitað líka bara kúra hjá ykkur, meira fjör en að vera ein í vöggunni:)
Annars kíki ég reglulega á barnalandssíðuna á myndirnar en hlakka mest til að hitta Kristínu Ósk "life", já og ykkur líka:)
Sóldís svaf líka bara í fanginu eða á brjóstinu fyrsta mánuðinn... hefur líka einhvern veginn aldrei verið að eyða tímanum í svefn eftir það. Við kölluðum hana Queen of Power Napping:o)
yndislegt :)
Gaman að heyra að ég er ekki ein um þetta:-) Það er einmitt ótrúlegt hvað sumir verða hressir eftir 5 mínútna blund!! hehe
Post a Comment
<< Home