Kristina Ósk 1 mánaða
Tíminn flýgur! Dóttir mín er orðin 1 mánaða nú þegar:)Við fórum í mæðragrúppu í dag, og leist bara vel á. Við erum 5 stelpur, ein önnur er líka læknanemi. Hinar eru læknaritari, kennari og leikskólakennari.
Annars er ég að skoða hin ýmsu tilboð um mæðraleikfimi og ungbarnasund fyrir okkur mæðgurnar. Við verðum að hafa eitthvað fyrir stafni áður en ég dett niður í átflipp fyrir alvöru! Það er svo miklu auðveldara að raða í sig kexpakka en að smyrja brauð með einum handlegg:) En við förum nánast daglega í 2klst göngutúra (þó sumir þeirra leggji leið sína í gegnum útsölurnar í Magasin, hehe) og ég geri magaæfingar og bakæfingar heima á stofugólfinu. Ekki má gleyma grindarbotnsæfingunum! Vildi óska þess að ég hefði hlustað betur á Kristínu leikfimiskennara í MS þegar hún vildi að við gerðum grindarbotnsæfingar í bak og fyrir:-) Þá hló ég bara að gömlu kellingunni! Hehe -enda var hún svolítið skondin, æfingarnar hennar voru á mörkunum að vera perralegar..
Og svo er komin dagsetning á skírnina hennar Kristinu, 31.mars. Við komum sjálf ekki fyrr en 30., þannig að það verður nóg að gera það kvöld! Við förum svo ekki af landi brott fyrr en 9.april. Vonandi náum við að hitta sem flesta!

12 Comments:
hmmm... ég verð á Íslandi 31. mars og ef þið hafið áhuga á söng í skírninni þá býð ég mig fram :) hef sungið í þeim ófáum og myndi vanda mig sérstaklega fyrir Kristinu Ósk!
Kristín og grindarbotnsæfingarnar!! Tær snilld hehehe
Ásdís
Halldís: Vá, ég er orðlaus! Já takk:-D
Ásdís: Hver hefði trúað því að þurfa einhvern tímann á þessum hræðilegu æfingum að halda??:)
Til hamingju með hana. Gangi þér vel með æfingarnar. Ef þú vilt að ég syngi í skírninni þá er ég alltaf til. Ef þú þarf að heyra tóndæmi þá skaltu hlusta á Geir Ólafs, en hann er náskyldur frændi minn.
Hehe, emmmm....takk fyrir boðið....but no thanks!
Og labba af stað............hvað var það!!! Labba gerandi grindarbotnsæfingar!!
Já og til lukku með Kristinu Ósk:)
Hahaha, ég sé hana alveg fyrir mér með "dragið rassinn inn og skjótið fram mjöðmunum og labbið áfram!":-)
Soldið óþægilegt að lesa svona í netheimum Ásta. En engu að síður til hamingju með dótturina.
Kveðja,
Kristín leikfimikennari
Vildi að ég gæti hitt ykkur familíuna í apríl en ég verð víst ennþá hérna á Indlandi. Hún er æði sæt litla dúllan! Kíki oft á hana á barnalandi.
Risaknús,
Sigrún Ósk
P.S. Keyptirðu þetta með Kristínu leikfimikennara? Hehehe. Ég verð fyndnari með hverjum deginum... :-/
Hehe, ég spurði sjálfa mig að því hversu óheppinn maður geti verið....eða ekki! Hverjar eru líkurnar? Og þó, amma skoðar heimasíðurnar mínar reglulega:-)
Takk fyrir, okkur finnst hún að sjálfsögðu algjört æði, alveg eins og mamma sín;-) hehe
Haha! Meira að segja ég þekki til Kristínar og grindarbotnsæfinganna. :) Ég er að fara af stað í átak líka...byrja bara rólega, fer í íþróttahúsið svona 3svar í viku. :)
Post a Comment
<< Home