Teddi gleuraugnaglámur
Í gær vorum við Jákup stödd í Fötex að versla. Við ætluðum bara að kaupa einn hlut en það læddust hinar ýmsu vörur í körfuna, m.a. súkkulaðidagatal (það er október -christ!), en það er önnur saga.... Við áleggjakælinn sáum við lítinn ljóshærðan strák í innkaupakerru með mömmu sinni. Hann var augljóslega blindur eða mjög sjónskertur og var með alla sömu takta og hreyfingar og litli frændi, hann Teddi! Hann setti m.a. hendurnar fyrir bæði augun og hallaði sér fram á handfangið á kerrunni, alveg eins og Teddi gerir þegar hann fær að sitja í innkaupakerru, sem er mikið í uppáhaldi. Ég hálf elti þau um búðina til að fylgjast með þeim:) Það fyndna er að auk hreyfinganna, voru þeir með sama ljósa hárið og að miklu leyti svipaðir í útliti. Ég hálf sé eftir að hafa ekki talað við þau, en ég var hrædd um að missa mig í tilfinningasemi og fara að grenja:S
Mikið saknaði ég litla strumpsins í gær!!:-) Pabbi hans var að setja saman andsetna myndaséríu af honum í gær, sjá hér!

5 Comments:
lol..."missa mig í tilfinningaseminni og fara að grenja". Ég vona að ég móðgi þig ekki en þessi setning fékk mig til að grenja...úr hlátri. Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef e-r ólétt ókunnug kona kæmi upp að mér í Hagkaup og færi að grenja þegar hún sæi Matthildi.
Ég bið bara að heilsa í bili. Vona að allt gangi vel.
Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég þorði ekki!:) Hvað ætli hún myndi hugsa?? Óléttar konur eru svolítið klikk;-)
LOL! Við skulum bara vona að þetta lagist eftir að þú ert búin að eiga. Eins og Kristinn getur vottað þá er ég engan veginn búin að jafna mig þó það séu tvö ár liðin - er ennþá óhemju væmin og viðkvæm yfir ótrúlegustu hlutum :S Tárast til að mynda yfir flestu sjónvarpsefni, og finnst ég vera klikkuð!
Ég er bara óhemju væmin þegar kemur að Teddanum mínum, ólétt eða ekki;-) Öll önnur væmni má þó alveg fara að lagast! :D
talandi um væl, veit ekki alveg hvernig ég verð ef ég verð ólétt, nógu viðkvæm fyrir...
kveðja
heiðdís
Post a Comment
<< Home