Ég elska....
....nýju saumavélina mína!:

Keypt í Þýskalandi:)
Innilegar hamingjuóskir til Hauks og Írisar, þau voru að eignast tvo yndislega stráka, sem ég er svo heppin að fá að skoða á morgun! Við Jákup ætlum að skreppa til Köben, og heimsækja litlu systur hans. Íris var sett á sama tíma og ég, í byrjun desember, og átti því 8 vikum fyrir tímann. Ég hlakka til að sjá litlu krílin og sjá með eigin augum hversu stór mín litla er núna:)

4 Comments:
voða er hún fín, til hamingju... getum farið að skiptast á sniðum, hehe. kv heiðdís
Já, vá! Ekkert smá fín :-)
Má ég spyrja hvað hún kostaði? Ég er nefnilega alltaf að leita mér að saumavél og þær eru svo ógeðslega dýrar hérna heima... búhúúú...
Sigrún Ósk
Hún kostaði 100 euro í Flensburg:-) Og saumar eins og draumur! Mamma er alveg spennt að koma í lok nóv og sauma hitt og þetta;) Vélin er með 3ja ára ábyrgð.
Það voru bæði dýrari og ódýrari vélar þarna, ég fór bara milliveginn!
Til hamingju með gripinn - ég veit þá hvert ég sendi götóttu buxurnar hans frænda þíns :) Og svo kem ég í heimsókn ef ég kaupi mér buxur sem eru of síðar!
Frábært hafðu það gott og knústu nýbökuðu foreldrana og stóru systur frá mér.
Helga Dröfn
Post a Comment
<< Home