Á morgun...
...er ég að fara í þrívíddarsónar!! Og það meira að segja ókeypis:D Það er nefnilega þannig að einn af læknunum er að fara að prófa nýjar græjur, eða kenna á þær, veit ekki hvort, og vantar tilraunadýr. Ég og Tanja vinkona erum báðar að fara, og fáum klst hvor. Og svo fáum við CD með upptökum með heim:)
Þá get ég staðfest kynið aftur (er alltaf að hugsa hvort það gæti hugsast að þetta sé strákur þrátt fyrir sónarinn síðast, vinkona mín lenti í því í fyrra!) og séð hvernig hún lítur út! Við erum mega spennt:D

4 Comments:
Ohhh ég trúi því! Þær myndir sem ég hef séð úr svona þrívíddarsónar sýna andlitið skýrt og greinilega - þið eruð sko heldur betur að "kíkja í pakkann" :) og svo er eins gott að þetta sé stelpa, annars verður aumingja strákurinn frekar metró, alltaf í bleiku.
Er ekki upplagt að smella af nokkrum bumbumyndum í kvöld og setja svo margar margar myndir inn á bumbusíðuna á morgun? Ég fylgist spennt með :)
Hehe, já ég ætlaði sko ekki að kíkja í pakkann, en þegar það bíðst svona þá.....:D
Ég lofa mörgum myndum á morgun! Jákup er að vinna þannig að ég get ekki tekið bumbumynd, en þær fylgja með á morgun;)
og hvað??? fáum við ekki fréttir?
HD
Inni á barnalandi:-)
Post a Comment
<< Home