Það rignir....
og rignir....
og rignir....
og Jákup er að keppa í fótbolta. Það verður blautur og þreyttur ungur maður sem kemur í heim í kvöldmat á eftir!
Flesta daga finn ég varla fyrir óléttunni, allt er svo auðvelt og ég full af orku. Svo koma dagar inn á milli, þar sem allt er ómögulegt!!:-S Svoleiðis dag átti ég í gær.... þreytt eftir helgina, svefnlítil, með bjúg á löppunum, með brjóstviða, með ofvirkt barn í mallanum, gat ekki sofnað fyrir pirringi í fótunum og var svo bitin af moskítóflugu í hendina! Klóraði mér svo mikið að það endaði með að Jákup tók hendina og neitaði mér um að klóra mér... Vaknaði svo kl.5.30 í morgun vegna kláða og fór dauðþreytt í skólann.
Á svona dögum vildi ég óska að það væri minna en 9 vikur til stefnu.....

2 Comments:
hey áttu brjóstsviðatöflur? á einhverjar sérstaklega ætlaðar óléttum, úr pakkanum góða hehe.
kv
heiðdís
Ég á nóg af þeim! Nota þær reglulega:-) Geymdu þær bara þangað til þú þarft á þeim að halda;) hehe
Post a Comment
<< Home