Sunday, October 22, 2006

Marianna, systir hans Jákups, kom í heimsókn í gær og ég eldaði kjúkling, sem þurfti að fara aftur í ofninn af því að hann var ekki gegnumsteiktur! Ég fór bara eftir uppskriftinni:( Algert klúður.... En hann steiktist undir lokin og ég vona að ekkert okkar hafi fengið alvarlega magakveisu...:(
Ég var á vakt á geðdeild á föstudaginn og las hin ýmsu konublöð. M.a. las ég innréttingaumfjöllun þar sem ég tók eftir að hjónin höfðu tekið allar uppáhalds uppskriftirnar sínar og veggfóðrað einn skápinn í eldhúsinu með þeim. Ég ætti kannski að gera eitthvað slíkt, alla veganna þarf ég að finna fram uppskriftir af öllu því helsta og gera aðgengilegar. Annars fæ ég nefnilega ekkert annað að borða en pizzur og pylsur fyrstu vikurnar á meðan ég er með barnið á brjósti.....nema ég verði þeim mun meira multitasking!:-D

2 Comments:

At 4:13 PM, Anonymous Anonymous said...

Hmmm misskildi ég þetta eða þarf að senda Jákup á matreiðslunámskeið;)
knús
heiðdís

 
At 7:24 AM, Blogger Ásta said...

Enginn misskilningur!:) En það snýst nú aðallega um vilja fyrir hendi;)

 

Post a Comment

<< Home