Wednesday, December 09, 2009

Maníodepressív?

Jákup sakaði mig í gær um að vera það, vegna þess að ég er gráti nær af frústrasjón annan daginn og hoppandi glöð og hamingjusöm hinn daginn... Er það ekki skilgreiningin á heimavinnandi mæðrum með tvö lítil börn?? Nei ég er kannski að misskilja eitthvað :D Sumir dagar eru bara ótrúlega lýjandi, eins og öll síðasta vika, þegar Kristina var með flensu og ég var innilokuð með þær tvær í 10 daga. Ég var enn að jafna mig á þessari viku í gær og grét krókódílatárum yfir því að eiga mér ekkert líf. Í dag sóttum við mæðgur Jákup í vinnuna eftir næturvakt, og fórum svo með Kristinu á leikskólann. Jákup fór svo heim að passa Írisi og ég fór ALEIN í endurhæfinguna eftir fæðingu (leikfimi með grindarbotnsáherslum). Ég kom endurnærð heim og ætlaði að éta barnið mitt eftir 2ja tíma fjarveru! :) Ég er líka að verða búin að jólakortaskrif og allar jólagjafir að verða komnar í hús, og ofan á það byrjuð á spennandi bók um Kay Scarpetta. Þá er deginum bjargað!

Ég er að bíða eftir því að Jákup vakni af lúrnum sínum, og ætla þá að draga fjölskylduna með mér í bíltúr til Tönder að skoða jólahúsið þar og miðbæinn. Hér þarf mikið til að halda Kristinu vakandi fram að kvöldmat, svo hún geti svo farið að sofa snemma. Hún er svo þreytt þegar hún kemur úr leikskólanum eftir að hún hætti að sofa á daginn, en þegar hún svaf enn, sofnaði hún ekki fyrr en kl.22.30 á kvöldin, sem var að gera okkur brjáluð. Þannig að það er allt að vinna ef hún getur bara vakað fram að kvöldmat og farið svo beint að sofa. En hún er voða þreytt þessa dagana eftir að hafa verið lasin í heila viku, og í fyrradag sofnaði hún í fanginu á mér á meðan við vorum að púsla kl.17! Í gær sofnaði hún í sófanum í hálftíma, og sofnaði svo ekki fyrr en kl.22.15 um kvöldið. Það er alveg agalegt að hún skuli vera svona þreytt, en ég er að vona að þetta sé tímabundið ástand, og vill af eigingjörnum ástæðum frekar að hún sofni kl.18.30 en kl.22.30! Ég vill bara fá smá tíma fyrir sjálfa mig á kvöldin.

Af því að ég er ekki búin að baka nóg (NOT) og af því að við höfum gott af meira áti (NOT) er ég að hugsa um að búa til heimatilbúinn ís með M&M (ef það verður eitthvað eftir af pokanum, hann er að hverfa ofan í mig hérna) og kleinur! Megrunin bíður betri tíma...

6 Comments:

At 4:33 PM, Anonymous Anonymous said...

Þið eruð öll kjánaprik og vitleysingar. En þið eruð ósköp krúttleg líka þannig að ég fyrirgef ykkur það. :P

Ég er alveg á því að ef maður má einhvern tímann éta eins og svín án þess að fá samviskubit yfir því, þá er það um jólin...og kannski á páskunum líka. Þannig að láttu þetta bara eftir þér, þú hefur stuðning til þess héðan af klakanum. :P

Dóris

 
At 9:24 AM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það Dóra mín! Kjánaprik já! Hehe
Ég á eftir að éta á mig gat næstu vikur og svo hata mig fyrir það, og fara svo í átak ;)

 
At 9:24 AM, Anonymous Anonymous said...

Ásta Ásta Ásta, thu ert sko ekki maniodepressiv!! thetta ER lysingin a heimavinnandi mædrum med tvø litil børn!! En ædislegt samt ad thu komst EIN i leikfimi, a thessum sidustu og verstu tha getur soleis munadur alveg dugad manni i nokkrar vikur, ad komast eitthvert ein og an barna! Hvernig var i Tønder? Saknisakn fra Odense, Sigga (hin maniodepressiva daman!)

 
At 11:05 PM, Blogger Ásta said...

Það er alltaf gott að heyra að aðrir eru eins og maður sjálfur :)
Jólahúsið var rosalega fínt, 1200 m2 af jóladóti! Ég gat alveg hugsað mér að kaupa hálfa búðina, en lét mér nægja að kaupa leirsnjókarl sem stendur núna fyrir utan húsið og bíður gestina velkomna, og tvær kúlur á jólatréð, ásamt jólaservíettum ársins :) Það var hins vegar svo dimmt þegar við fórum, að ég sá ekki skít í Tönder, og við höfðum ekki tíma til að spranga um bæinn, Kristina var byrjuð að grenja af þreytu, enda klukkan 18.30. Ég get endalaust furðað mig á öllu þessu fólki sem býr út um hvippinn og hvappinn í Danmörku (nú erum við meðal þessara skrítnu...Rödekro -hvað er það?? :)

 
At 11:04 AM, Anonymous Sigga said...

Hehehe, ja nu erum vid skritna folkid sem byr "in the middle of nowhere"!. Ertu med msn? Svona ef vid skildum einhvern timann vera a sama tima i tølvunni (og af thvi eg er ekki a facebook!!). Godan 3. i adventu.

 
At 12:33 PM, Blogger Ásta said...

Jamm, ég er astasys@hotmail.com ;)

 

Post a Comment

<< Home