Damdídarídei
Sæta músín mín! Bíð spennt eftir því að hún fari að grípa í dót :)
Ég er búin að eyða óhemju tíma í tölvunni síðustu daga, fyrst og fremst til þess að reyna að koma Topcom þráðlausa routernum í gang svo við bæði getum eytt tíma okkar í tölvunni í einu (btw ekki gott múv! Eins og er, er annað okkar alltaf tölvulaust og sinnir þá börnunum á meðan, hemmhemm) en án árangurs. Svo er ég búin að hringja í pabba og við saman í gegnum Teamviewer að reyna að komast til botns í þessum andskotans leiðbeiningum sem ekki voru að gera neitt gagn. Mér var sagt um daginn að Topcom væri með 91% gallatíðni, þannig að ég bjóst alveg eins við þessu, en varð að reyna samt sem áður, bara á þrjóskunni! Við pabbi gáfumst upp í gær, eftir mikið maus, og ég hringdi í dag í netfyrirtækið okkar til að heyra hvort þeir gætu ekki selt okkur betra tæki. Þá bjóða þeir upp á þráðlaust net fyrir 29kr á mánuði, maður fær bara annars konar router en þann sem ég er með núna. Gátu þeir ekki sagt þetta fyrr???
Svo er ég að rembast við að setja inn video af snúllunum mínum, teknu á Canon vélina mína. Ég er vön að meðhöndla video úr Fuji vélinni, í Movie maker. En Movie maker les ekki .mov fílana úr canon vélinni. Pabbi var því að láta mig downloada forriti (Formatfactory) sem breytir formatinu á fílnum, en það virkar ekki. Og ég er ekki algjör hálfviti, ég bara veit ekki af hverju lífið er á móti mér þessa dagana!
Ég reyndi sko líka að baka kleinur í gær, sem gjörsamlega misheppnuðust og heimatilbúna pizzan á laugardaginn varð ekkert spes.
Jæja, en það góða er að ég er byrjuð að æfa eins og monster á Nintendo Wii active og það er að gera góða hluti! Er með harðsperrur í öllum líkamanum -me like! Og ég er bara hress þrátt fyrir mótlætið. Svona hefur líkamsræktin góð áhrif. Ég meira að segja horfði og handfjatlaði eitt stykki súkkulaði hérna áðan og setti það svo aftur ofan í skúffu! Járnagi (alla veganna þennan klukkutímann hehehe;)

8 Comments:
Vá, djøfuls moli ad geta sett sukkuladid aftur a sinn stad!! Daist ad ther;) Bøgg med allt hitt, hvad er eiginlega malid?! Af hverju eru sumir dagar svona? Kram
Massi!
En með Canon vélina, þá er þetta ábyggilega bara spurning um codec. Ég skal tékka á því.
Sendi þér öppdeit.
KT
Aginn hélst framyfir kvöldmat, þá dró ég fram afgangana af maltesers ískökunni og borðaði með manninum mínum! Múhahahha!!
Bíð spennt eftir update :)
Ertu nokkuð að taka videoin í high def?
Stillu vélina bara á 480x640, það er miklu einfaldara og skemmtilegra að eiga við.
KT
Veit ekki...þarf að athuga það! En það bjargar mér ekki með videoin sem búið er að taka. Einhver ráð?
Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það svona tæknivesen! Grrrr... Alla mína samúð.
Og áfram Ásta með ræktina og dugnaðinn! Geturðu sent smá af honum til mín í pósti?
Takk fyrir það Sigrún! Ef ég gæti bara verið jafn dugleg í matarræðinu! En ég verð bara að lifa af jólin og taka svo rækilega til í skápunum mínum eftir áramót. Það er ekki hægt að fara í átak um jólin, er það? :) Ég þrái gamla mittið mitt meira en ég gæti lýst!
Þú notar jólin til að borða allt þetta gómsæta úr skápunum og fyllir svo á eftir áramótin með hnetum og ávöxtum og gulrótum og svona ... góðgæti...
Og nei jólin eru sko ekki til að taka sig á í matarræði.
Helga Dröfn
Post a Comment
<< Home