Tuesday, December 22, 2009


Jólasnjórinn er mættur í Rödekro og feðginin eru búin að vekja snjókarlinn til lífs á bakvið hús!

Í dag gerðum við Kristina konfekt úr 1 kg af marsípani og alls kyns góðgæti.
href="https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEgMiT_MJfaRT6E-9_TIu8Oz4cGoDcGIECA0K3QCpTO7Y9kui9zBBY4jdf99ENOqhpiDx5XrASS4a5Rhr3BN5tXcSMAVJ4SUu5cFXEUdd4Gbi75CqXQ0I3BrcKwqJ4Qvz2zchtDraQ/s1600-h/Desember+2009+004.JPG">
Litla snúllan mín er að verða svo skemmtileg.

Jólaundirbúningurinn er langt kominn. Allar gjafir eru keyptar og jólakortin löngu send af stað. Steikin er í frystinum og matarinnkaup fyrir jóladagana verða gerð á morgun. Í dag gerðum við Kristina konfekt, og ég ryksugaði og skipti á rúmunum, gekk frá þvotti og þvoði ofninn. Maðurinn minn virðist halda að allt gerist af sjálfu sér og honum liggur ekkert á að þrífa fyrir jólin. Ég er örugglega ekki ein um það. "sighhhhhh"
Íris hefur gert lítið annað í dag en að gubba um allt. Gott að ég fór aldrei úr náttfötunum. Kristina var með hita í nótt (held ég, ég nennti ekki að fara á fætur til þess að mæla hana) og var því heima með mér í dag. Hún fór heldur ekki úr náttfötunum fyrr en seinnipartinn.
Er hægt að lesa í gegnum þetta að ég sé að verða hálfgeðveik á að vera heimavinnandi úti á landi?

4 Comments:

At 9:24 PM, Anonymous Anonymous said...

Ææææ litlu snúllurnar, vona theim lidi betur svo thid naid ad koma i skøtu a morgun! Og nei, mer finnst thessi færsla ekki lysandi fyrir gedveika, threytta heimavinnandi husmodur ut a landi... mer fannst hun svo skemmtileg og "glød" einhvern veginn;) Hlakka svo til ad sja ykkur a morgun. Knus Sigga

 
At 11:08 PM, Blogger Ásta said...

Hehe right!
Íris er gubbandi út af hori, þær eru báðar svo kvefaðar. En alveg í fínu lagi fyrir ferðalag, sem er bráðnauðsynlegt fyrir mömmuna á bænum!
Hlökkum til að sjá ykkur líka!

 
At 7:58 PM, Anonymous Fjóla said...

Æi vonandi verða þær hressari á morgun snúllurnar!
ójá ég kannast við það, ég er búin að sjá um allann jólaundirbúning nema að kaupa gjöf handa sjáfri mér og pakka henni inn (hann réð við það). Hans verk er að gera dvdmynd,með karenar videóum, handa familíunni (ekki tilbúið), þrífa wcið (enn eftir) og elda jólamatinn (vona nú að það gerist allavega á morgun;)) Karlmenn! En þetta var bara smá auka púst sem ég ætla að leyfa mér að skilja eftir hér;) Eigðu gleðileg og kósý jól með familíunni Ásta mín:):)
xx

 
At 11:07 AM, Blogger Ásta said...

Það er smá huggun að þeir séu allir svona vonlausir ;) Mínum tókst ekki einu sinni að koma mér á óvart með jólagjöf, ég veit hvað er í pakkanum! En ég verð ánægð með það samt :)
Gleðileg jól til ykkar!

 

Post a Comment

<< Home