Gleðileg jól!
Við vöknuðum í morgun með báðar dætur okkar uppí, og kveiktum á sjónvarpinu í svefnherberginu. Við horfðum öll saman á Öskubusku á Disney channel og Kristina lifði sig inní myndina með hoppum og skrækjum! :) Nú er búið að baða 3 af 4 (ég er eftir), búa til möndlugrautinn fyrir kvöldið og Jákup er farinn til Fredericia að sækja Annie í lestina (tekur 1,5 tíma). Já, það hvílir þvílíkur jólaandi yfir öllu hérna, nema hjá hinni mágkonu minni sem nennti ekki að sækja systur sína á lestarstöðina á leiðinni út úr bænum í Odense, af því að þá gæti hún ekki sofið 5 mín lengur! Vá, ég er svo pirruð, en vonandi er þetta púst nóg til þess að ég geti lagt það til hliðar fyrir kvöldið!
Nei....þolihanaekki þolihanaekki þolihanaekki þolihanaekki..... ok búið. ;)
Kristina var komin með hita í gærkveldi og er enn með hita, þannig að hún er voða lítil í sér og aum. En við vonum bara það besta fyrir kvöldið.
Það sætasta sem ég veit er þegar Kristina vaknar á nóttinni til að pissa, og situr stjörf á koppinum á meðan ég bíð til þess að þurrka henni. Svo girðir hún buxurnar og hleypur aftur inn í herbergi í rúmið sitt! :D
Gleðileg jól!!

4 Comments:
Hahahaha það er lífsnauðsynlegt að pústa svona annað slagið;)
Gleðileg jól:)
HAHAHA eins gott að hún læri aldrei íslensku HAHAHHAHAHA...
Gleðilega hátíð og ég vona að kvöldið hafi verið hátíðlegt eftir pústið :)
Helga Dröfn
Hemhem! :) Hún á aldrei eftir að lesa þetta, sem betur fer ;)
Jólin væru ferlega nice þrátt fyrir þetta atvik, og ég trúi því varla hvað þau eru fljót að líða!
Næst á dagskrá er að hugsa um ferðina til Færeyja 2.jan og skipuleggja skírn. Trallala!
Aaaah, skil pirringinn thinn vel!! Vona samt thad verdi huggulegt i matarbodinu a eftir, i versta falli geturdu komid til min i kaffi og rasad ut!! Knus Sigga
Post a Comment
<< Home