Sunday, January 11, 2009

Við Lina mætum hver annarri myglaðari kl.8 þessa dagana til þess að reyna að troða einhverju inn í hausinn á okkur, einungis til þess að eitthvað rjúki út í staðinn. Hmmm. Inn á milli missum við okkur í spenningi yfir því að eiga okkur bráðum líf á ný.
Það er augljóslega komið í ljós að það eru bæði kostir og gallar við það að eiga börn í svona lokasprettum. Kosturinn er sá að við verðum að fara heim seinnipartinn, leika með lego og elda mat, og getum ekki snert bækurnar fyrr en garmarnir eru sofnaðir. Þar af leiðandi er maður ekki með samviskubit yfir lestri allan liðlangan daginn eins og singlarnir. Svo er yndislegt að lífið snúist um eitthvað annað! Gallinn er sá að maður hefur enga stjórn á eigin svefni eða formi hvern dag, því barnið ræður því. Kristina er búin að vera frekar ómöguleg síðustu daga vegna þess að hún hefur verið með hægðartregðu og ekkert viljað borða. Hún vaknaði kl.1.30 í fyrradag og var vakandi til kl.5 og þar að leiðandi ég líka. Svo var bara málið að rífa sig á fætur kl.7 til þess að fara að læra. Hún svaf áfram litla tröllið. En allt í allt er enginn munur á einkunnum þeirra sem eiga börn og hinna. Alla veganna ekki síðustu ár. Í sumar voru meira að segja 2 af 4 hæstu nemendum mæður, og önnur þeirra einstæð. Þetta verður spennandi!:)
Um helgina erum við í fríi. Algjöru fríi. Mmmmmmmmm:D

4 Comments:

At 2:48 AM, Anonymous Anonymous said...

Gangi þér vel á lokasprettinum! Nú er þetta alveg að verða búið;)

 
At 10:51 PM, Anonymous Anonymous said...

Sendi úberdúberlæristrauma yfir hafið. Gangi ykkur ROSALEGA VEL!!

Kveðja Helga Dröfn

 
At 10:25 AM, Anonymous Anonymous said...

Jæja, er ekki gott að vera búin? :)

 
At 12:30 AM, Anonymous Anonymous said...

Til lukku með að vera búin :)

HD

 

Post a Comment

<< Home