Monday, January 05, 2009

Próf á morgun

Yes, þá er komið að því. Fyrsta próf á morgun og það eina sem við hugsum um er hversu ljúft það verður þegar þessu er lokið! Hlakka svo til að eiga mér líf á ný. Vinir okkar smituðu okkur (og alla hina sem voru með okkur hehe) af ælupest á gamlárskvöld og Dóra lagðist í valsinn 1.jan og ældi lifur og lungum í hálfan sólarhring. Við Jákup sluppum með skrekkinn, var illt í maganum og flökurt en ældum ekki. Ég er enn með magakveisur. Svo tók Kristina upp á því að fá 40 stiga hita í fyrradag og er enn með hitavellu, og það hefur því ekki verið mikið um svefn hér síðustu daga. Ég ætlaði að reyna að tæma hugann í kvöld og horfa á sjónvarpið, en Kristina er ekki á því að fara að sofa. Hún átti að fara til dagmömmunnar í morgun í fyrsta sinn eftir jólafrí, en var heima hjá Dóru í staðinn. Ætli hún verði ekki líka heima á morgun, hitinn er minni en ekki farinn.
Við ætlum að taka pásu frá lestri á morgun eftir próf, og förum seinnipartinn að hitta kokkinn að skipuleggja matinn fyrir brúðkaupið. Ég missi mig alltaf í að hugsa um brúðkaupið þegar ég á að vera að læra þessa dagana;)
15.janúar verður æði.

6 Comments:

At 11:29 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohh en skemmtilegt med ælupest... Vona øllum fari ad batna. Gangi ykkur rosalega vel a morgun, hugsum fallega til ykkar hedan fra Islandi. Knus Sigga

 
At 12:18 AM, Anonymous Anonymous said...

Sendum ykkur strauma!!
Valdís

 
At 5:48 PM, Blogger Unknown said...

Ji nú eruði ábyggilega búin með fyrsta prófið! þá fer þetta alveg að verða búið hjá ykkur! öfunda ykkur ekkert smá að klára þetta ;) Gangi ykkur sem best og hugsa til ykkar :)
Hjördís Elva

 
At 7:59 PM, Blogger herborg said...

Gangi ykkur vel á lokasprettinum:) Þetta er aaaaaalveg að verða búið:)

 
At 9:01 PM, Blogger Ásta said...

Fyrsta próf gekk fínt;)
Nú er ekki mikil orka eftir, en tilhlökkunin er þeim mun meiri! hehe Takk fyrir kveðjurnar!

 
At 4:56 PM, Anonymous Anonymous said...

Æi vá hvað ég trúi því að þið séuð spennt að klára - enda ótrúlega stutt eftir! Gangi ykkur báðum vel á lokasprettinum, og svo sjáumst við þann 26. :)

 

Post a Comment

<< Home