Sunday, January 18, 2009

Útskrift, brúðkaup, flutningar, ný vinna....

Kristina að bíða eftir mér, þegar ég var að klára prófið.
Litla fjölskyldan, ég nýkomin úr prófinu, búið að taka á móti mér með blómum og kampavíni!

Ég var byrjuð að skrifa svo langt komment við síðustu færslu, að ég ákvað að skrifa bara nýja færslu og segja frá því hvað er framundan hjá okkur -í smáatriðum. Það er svo margt að gerast!
Næstu dagar fara í snatt fyrir brúðkaup. Á morgun förum við Dóra og Jákup í bæinn að leita að kjól fyrir útskriftina og redda alls konar hlutum, m.a. þarf ég að versla fyrir kökubakstur, en ég ætla að baka brúðarkökuna sjálf:D Dóra ætlar að baka kransaköku, og hjálpa mér með hina kökuna. Seinnipartinn erum við að fara á námskeið fyrir komandi lækna og þær frænkurnar ætla að hugga sig á meðan. Þriðjudagur er dæmdur bakstursdagur til þess að æfa mig:)
Á miðvikudag er samtal við prestinn og prufugreiðsla og förðun. Á fimmtudag er ég að fara til læknis að láta fjarlægja fæðingarblett. Á föstudag á að taka lubbann á litlu prinsessunni! Greyið sér varla út úr augunum lengur fyrir hári, en hún fékk gjafakort í klippingu í jólagjöf frá ommu og abba, þannig að það er upplagt að nota það fyrir stóra daginn.
Fjölskyldan kemur öll á mánudaginn og hlökkum við mikið til! Þá verður kökubakstur í stórum stíl og kjóllinn sóttur og annars bara huggulegheit. Brúðkaupið er á miðvikudag 28., útskrift 30. og nýja vinnan byrjar svo hjá okkur báðum á mánudeginum 2.feb. Sama dag fer fjölskyldan heim, og við þrjú förum að skipuleggja flutninga á meðan við erum að venjast nýju tilverunni. Við flytjum í læknaíbúð í byrjun febrúar. Við erum aðeins byrjuð að pakka niður, en það er alveg skuggalegt hvað við getum sankað að okkur af rusli og dóti. Við ætlum að henda öllum glósum frá fyrsta hluta námsins amk, og losnum þá við að flytja allmörg kg með okkur! hehe:) Með hverju árinu getum við fyllt heilt herbergi í viðbót með dóti. Hugsa sér að þegar ég flutti til Danmerkur fyrir 8 árum síðan, átti ég húsgögn og dót sem fyllti eitt herbergi og fannst nóg um. Nú erum við í 110m2 íbúð, stútfullri af dóti. Hversu mikill peningur hefur ekki farið í þessi ósköp??

5 Comments:

At 8:54 PM, Anonymous Anonymous said...

vávává það er aldrei rólegt í kringum ykkur!
En þvílíkt spennandi tímar hjá ykkur:) Hlakka mikið til að sjá myndir af útskriftinni og brúðkaupinu,ég er viss um að þið verðið öll stórglæsileg;) Mætir Kristinn út með myndavélina?
Góða skemmtun í öllu fjörinu:)
Já og þið Dóra aldeilis duglegar í bakstrinum!

 
At 9:18 PM, Blogger Ásta said...

Takk! Já, Kristmundur ætlar að munda vélina fyrir okkur. Spurningin er bara hvar maður finnur hentugan stað fyrir myndatökur í janúar:)

 
At 8:25 PM, Anonymous Anonymous said...

Ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug;)

 
At 8:37 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohhh en gaman að geta eytt tímanum í þetta allt saman! :) Mun betra en prófalestur =)
Gangi þér vel með kökuna! Sniðug að gera hana sjálf.
Gangi ykkur áfram vel.

Helga Dröfn

 
At 12:52 AM, Blogger Unknown said...

Hey frábært, til lukku með allt saman....þið eruð frábær og standið ykkur frábærlega vel. Verðum með hugann hjá ykkur á brúðkaupsdaginn, útskiftardaginn og allt það sem framundan er hjá ykkur. Innilega til hamingu með sjálf ykkur elsku fjölskylda. Komum vonandi fyrr en síðar í heimsókn.... Knús Helga og com

 

Post a Comment

<< Home