Það er algjör hamingja að vera búin! En við erum svolítið þreytt eftir alla þessa spennu.
Fyrsta prófið var skriflegt með 15 verkefnum á 3 tímum. Það var gert ráð fyrir 12mín á hvert verkefni, sem voru mislöng, þannig að stundum var urðum við að halda áfram án þess að hafa klárað verkefnið og snúa svo aftur þegar það gafst tími eftir önnur verkefni. Það voru oftast 4 spurningar í hverju verkefni og oftast myndir eða hjartalínurit sem einnig þurfti að meta, þannig að það var mikil tímapressa. Það var því bara tími til að skrifa það sem kom fyrst upp í hugann, og iðulega gleymdist eitthvað.
Fyrsta munnlega prófið var á þriðjudag. Það voru 10 standar með prófdómara og leikarum sem léku sjúklinga. Stundum voru dúkkur, ef við áttum að gera kvenskoðun eða leggja þvaglegg. Einn standurinn var hjartastopp, med dúkku og 4 svæfingalæknum sem stóðu og gláptu á mann reyna að bjarga lífi þessarar vesalings dúkku:) Seinni dagurinn var á fimmtudag, einnig með 10 stöndum. Við fáum svo sameiginlega einkunn fyrir alla 3 daga. Það gekk allt í lagi í skriflega prófinu, fínt á þriðjudag og alveg meiriháttar vel á fimmtudag:) Um kvöldið fórum við út að borða með bekknum og skemmtum okkur vel. En fólk var ansi framlágt, og ég var farin heim um miðnætti. Þá gat ég ekki talað lengur fyrir þreytu!
Við skruppum í bæinn í gær, til þess að fara með Kristinu í tveggja ára skoðun og máta brúðarkjólana okkar einu sinni enn. Kristina er 91cm og 13kg. Flott stór stelpa. Og hún var ægilega ánægð með kjólinn sinn, snerist í hringi fyrir framan spegilinn og sagði Stina fín!!:D
Við fórum líka á kommúnuna að redda pappírum fyrir brúðkaup, á síðusta snúning, en við höfum bara ekki haft tíma til þess fyrr. Næstu dagar fara í að velja sálma, tala við prestinn, fara í litun og prufuhárgreiðslu og æfa mig í að baka brúðartertuna!

8 Comments:
Vá, spennandi tímar framundan hjá ykkur! Njótið ykkar í brúðkaupsundirbúningnum, þetta er svo gaman!
Kv. Valdís
Til hamingju með þennan stóra áfanga Ásta og Jákup! Fæ alveg gæsahúð að lesa um prófin :)
Gangi ykkur svo vel í brúðkaupsundirbúningnum, heldur betur skemmtilegir tímar framundan!
kveðja Elva Dögg
Takk fyrir báðar tvær! Þið getið hlakkað til, þetta er skemmtilegt próf. En brjálæðisleg vinna á undan:( En maður verður svo klár á þessum mánuðum, svo hverfur þetta aftur! hehe
Innilega til hamingju með að vera loks búin:) Engin smá törn loks búin hjá ykkur! Njótið þess í botn að vera loks í fríi og skemmtið ykkur vel og njótið bæði undirbúningsins og brúðkaupsins:)
Flott skoðun hjá Kristinu Ósk og mér finnst æðislegt að hún hafi verið svona ánægð í kjólnum og sagt stina fin,yndisleg stelpa sem þið eigið!
INNILEGA TIL HAMINGJU!!!:) Ég fékk líka gæsahúð við að lesa þessa færslu:)
Núna er að njóta þess að anda inn og út og hafa skemmtilegt! Brúðkaupsundirbúningur hlýtur að vera piece og cake eftir svona törn, ikke??
HEHE - snilld - TIL HAMINGJU MEÐ PRÓFALOKIN!! :* puss och kram.
Er ekki hissa á að þið hafið verið orðin framlág! Jiminn. Þetta er búið að vera rosa álagstími. En nú fær Kristina loksins að njóta ykkar í botn :) Svo fremi þið takið ekki að ykkur botnlausa kandidats vinnu núna! Eða fáið þið kannski ekkert um það að segja?
Gangi ykkur vel með brúðkaupsundirbúninginn. Hlakka til að sjá myndir...
Helga Dröfn
Takk stelpur! Hér er mikið afslappelsi í gangi og við kunnum eiginlega ekki að meta það, og leiðist bara:D En það er gott að þurfa aðeins að læra að slaka á;) Kristina hefur mest alla önnina notið þess að hafa annað okkar heima, á meðan hitt lærði, en finnst notalegt að hafa okkur bæði heima núna.
Dagarnir fara í brúðkaupsundirbúning, og það er allt að koma. Þetta verður peace of cake! hehe
Vinnan tekur við 2.feb, en fyrstu tvær vikur verða rólegar með aðlögun.
Vei, vei, vei! Húrra, húrra, húrra!
Snilli minn tilli! Innilega til hamingju með þennan áfanga. Hefur rúllað þessu upp ef ég þekki mína rétt :)
Bara gaman að geta dúllað sér í brúðkaupsundirbúningi núna! Þið mæðgurnar verðið pottþétt fínustu Stínur daginn stóra :)
Post a Comment
<< Home