
Kristina fór með mér á klósettið í gær og horfði áhugasöm á mig þegar ég pissaði. Hún reyndi ma að færa mig aðeins til svo hún sæi ofan í klósettið:) Þegar ég var búin að sturta niður benti hún á sjálfa sig og sagði "tiss" og vildi fara á klósettið. Ég tók bleyjuna og setti hana á klósettið (best að halda í þessi kríli svo þau detti ekki ofaní;) og þá kallaði hún á pabba sinn voða stolt og sagði "tiss!". Þegar ég spurði hvort hún væri að pissa þá rembdist hún í smá stund og prumpaði. Þá var mín sátt og mjög stolt, og var búin að tiss:D
4 Comments:
Æi yndislega stóra duglega stelpa:D
Held að Karen yrði skelfingu lostin ef ég myndi skella henni á klósettið, eins og hún er forvitin um það, þá finnst henni það líka frekar ógeðslegt;)
Dúllan:):):) gott hún er komin með rörin og líður betur. Hvernig er "nef"heilsan þín annars? Knus,Katla Tholl
Ég er eins og roadkill. Mjög glæsileg og heillandi og vænleg til undaneldis;)
Það þarf eiginlega að vera í fjöldskyldunni til að sjá brandarann við " tiss" innleggið. Það er ekki víst að allar konur gangist við því að prumpa þegar þær pissa.HI HI
amman
Post a Comment
<< Home