
Oh my god. Þetta er hryllingur. Hlakka óendanlega til að fá umbúðirnar af á föstudaginn! Er þó ekki með köfnunartilfinningu, en það blæðir í hvert sinn sem ég hreyfi mig, og það var ekki gott múv að hjóla heim í gær;) hehehe Ég laug að hjúkkunum og sagði að það kæmi einhver að sækja mig. Þær voru að hafa áhyggjur af því að ég ætlaði að keyra heim! Ég neitaði líka að bíða í 5klst eftir því að það kæmi læknir að útskrifa mig. Ég sagði hjúkkunni að ég væri að fara heim og ég hitti engan lækni. Ég er versti sjúklingur sögunnar:S Svo kom einhver vesalings nemi og ætlaði að taka æðalegginn af mér, en vissi ekkert hvað hún var að gera, þannig að ég gerði það bara sjálf.
En ég sit sem sagt heima og horfi á sjónvarp að mestu. Reyni að læra inn á milli, en það er erfitt að horfa niður á við, hvað þá einbeita sér. Lina kom við í dag og hló að mér, svo fórum við yfir nokkur case. Stóra spurningin er hvort ég eigi að leggja í að fara í skólann á morgun? Atkvæðagreiðsla takk.
12 Comments:
Auma kellingin! En klassiskt ad verdandi læknir se versti sjuklingurinn;) Mer finnst thu nu lita bara vel ut sko, en held samt thu ættir ad vera heima a morgun og jafna thig, svo thad hætti nu einhvern timann ad blæda og svona, thad er amk dyralæknaatkvædid! Knus Sigga
Ég legg til að þú látir Guð ráða þessu.
Henntu nokkrum kjúklingabeinum í skál, lestu svo í og sjáðu þannig hvort Guð vilji að þú farir að vinna eður ei.
:P
KT
ég sé til í nótt:) Kristinn þú ert alltaf með trúnna með í þessu! Ég er aðeins meira hégómaleg..;)
Vissi að læknar væru erfiðir sjúklingar en Ásta þó að hljóla heim eftir aðgerð!!;) bíða ekki einu sinni eftir að vera útskrifuð fyrst og kippa bara æðaleggnum úr sjálf, ég gat ekki annað en hlegið þegar ég las þetta:D
En er nú ekki best að halda sig bara heima meðan blæðir enn? Efast samt einhvernveginn um að þú gerir það;)
Góða bata
Rétt hjá þér, ég er á leiðinni í skólann!:) En það er líka nánast hætt að blæða.
Ég verð að nefna það að hjúkkan hringdi fyrir mig í lækninn sem gerði aðgerðina og fékk leyfi til þess að senda mig heim. Læknirinn þekkir mig og veit að ég er læknanemi. Verra var það ekki:)
Batakveðjur! Þú ert hörkutól, á leiðinni í skólann!?
Sorry, síðasta komment var frá Valdísi...
Takk fyrir það Valdís! Hér er allt í bestu málum, umbúðir komnar af og ég get andað eins og aldrei fyrr!:)
Ég ræddi við lækninn í dag, og hún sagði mér að nefið á mér hefði verið mjög skakkt, jafnt utan sem innan, og að hún hefði skafið 2cm bein í burtu. Hún sagðist halda að ég hafi nefbrotnað í fæðingu, enda hef ég alltaf verið svona, svo lengi sem ég man. Athyglisvert!:D
Gott að þetta gekk vel hjá þér :) Myndirnar eru auvitað alveg óborganlegar ;)heheh Vona þú getir andað léttar núna múhahaha
Ja hérna - hörkukerling ertu. Held að ég hefði haldið mig heima :þ og þó - kannski segir maður bara svona þegar maður er ekki í þessu sjálfur. Gott að heyra að allt gekk vel. Verður enn hamingjusamari á brúðkaupsdaginn eftir þetta :)
Kveðja til ykkar. Helga Dröfn
Takk fyrir stelpur! Nefið er guðdómlega aumt. En mikið er ég búin að tala mikið um þetta blessaða nef síðustu daga!:D
Ég verð mjög hamingjusöm á brúðkaupsdaginn en nefið er búið að ná fyrri stærð!
hvernig væri að koma með mynd af núverandi status, bara svona til að bera saman ;)
Post a Comment
<< Home