Það er alveg brjálað prógram næstu daga, og við í einni af stærstu vikum annarinnar. Á morgun er ég í lesgrúppu til 16, þaðan bruna ég beint með fjölskyldunni í 1 árs afmæli, og aftur í lesgrúppu kl.20. Á föstudag er lesgrúppa eftir skóla, og svo jólafrokost með fíló. Á laugardag förum við fjölskyldan til Köben að halda uppá afmælið hennar Annie og komum ekki tilbaka fyrr en á sunnudag eftir dag í tívolí. Þetta verður næstum því síðasta truflun vetrarins, en í næstu viku fer ég í lokamátun á brúðarkjólnum og með Kristinu til eyrnalæknis. Svo er 2ja ára afmælið hennar Kristinu eftir bara rúmar 2 vikur:D Svo er líka jólaball í legestuen á miðvikudag. Það er alltaf eitthvað!
Kristina er búin að vera syngjandi kát síðan ég sótti hana í dag. Hún er búin að hlaupa um og söng fyrir mig á meðan ég eldaði mat. Hún var að uppgötva sólgleraugun sín aftur og bangsarnir skiptast á að fá að máta þau núna:)

4 Comments:
Já gott að sjá eitthvað annað en nefið á þér :) þó það sé gaman að horfa á þig (ekki meint perralega HAHAHA)
Já greinilega NÓG að gera!
Bara lokamátun fyrir brúðarkjólinn - fyrir jól... eins gott að þú borðir ekki of mikið um jólin hihihihi. Er strax farin að hlakka til að sjá myndir... eins gott að það verði teknar myndir og fullt af þeim :)
Gangi ykkur vel með dagskrá næstu daga og vikna, og ekki gleyma að læra. Vona að nefið sé betra!
Helga Dröfn
svo sæt mynd:)
En vá hvað það er alltaf brjálað að gera hjá þér!! Fer að halda að þú sért ofvirk;)
Þú ert sko hörkudugleg kella Ásta mín!
Ég er búin að reikna það út að þetta hlýtur að jafnast út í heildina. Það sem ég næ að þyngjast um jólin hlýtur að rjúka af aftur í prófstressinu í janúar:D
Takk fyrir, við reynum að halda hausnum skýrum í þessu öllu saman. Og þvo þvott inn á milli;)
ég hélt að ásdís væri sú eina sem þyrfti fleiri klukkutíma í sólarhringinn, en þú ert komin í hópinn:) hehehe....
Gangi ykkur vel með þetta allt saman:)
Post a Comment
<< Home