Wednesday, November 12, 2008

Hvað er að gerast í baunalandi? Kristina fór í aðgerð á mánudaginn og fékk ný rör í bæði eyrun. Eyrun voru stútfull af seigu slími, og barnið er allt annað í dag. Dagmamman segir mikinn mun á henni, og við erum strax farin að sjá framfarir á öllum sviðum. Hún fór að reyna að segja ný orð, sefur eins og engill og bregst við því þegar kallað er á hana. Greyið var nánast heyrnalaust! Hún er hrikalega mjúk þessa dagana og kyssir og faðmar eins og hún fái borgað fyrir það. Hún er líka farin að sýna mikil viðbrögð þegar við erum að lesa bækur eða horfa á teiknimyndir. Henni brá mikið í gær þegar kisa náði að krækja í litlu músina í bókinni sem við vorum að lesa, og hrópaði á pabba sinn til að segja honum hvað væri að gerast! Áðan vorum við að horfa á Litlu ljótu lirfuna, sem mamma var að senda henni. Hún ákvað strax að lirfan héti Teddi og stóri ormurinn var pabbi hans, "Diddi" (Kiddi):D Þegar kóngulóin náði lirfunni og vafði hana inn í kóngulóarvef, varð henni mikið niðri fyrir og fór næstum að gráta! Hún talar alla myndina, bendir og nafngreinir alla og lifir sig mikið inn í allt. Bara gaman að fylgjast með henni:)
Ég er að fara í aðgerð á miðnesi á þriðjudag og verð því eins og hryllingur í nokkrar vikur! Myndir koma ef ég er ekki verri en hryllingur. Lina lesfélagi ætlar að koma heim að læra með mér á miðvikudag, svo verð ég að harka af mér verkina og fara í skólann á fimmtudag ef ég er ekki þeim mun verr útlítandi:) Þýðir ekkert að missa af kennslu, ég verð bara að útskýra að ég hafi ekki verið í nefaðgerð fyrir brúðkaupið. Hehe. Já by the way. Við erum að fara að gifta okkur 28.janúar:)

12 Comments:

At 10:29 AM, Anonymous Anonymous said...

Æ en ædislegt ad heyra ad henni lidur svona mikid betur! Hun verdur altalandi um jolin;) Vona thin adgerd gangi lika vel! Vid heyrumst, Sigga

 
At 8:40 PM, Anonymous Anonymous said...

Yes, við Teddi kommum við sögu :)

Frábært að þetta hafi þó komið fram og rörin löguð.

Rock on.

Diddi (KT)

 
At 9:08 PM, Blogger Ásta said...

Gleðin varði stutt, við Kristina erum komnar með kvef og hálsbólgu:(
En eyrun eru alla veganna ekki að trufla hana.
Teddi kemur við sögu nánast daglega, hún sparar meira Didda nafnið:)

 
At 10:28 PM, Blogger herborg said...

nooooh, kominn dagur:)

 
At 12:01 AM, Anonymous Anonymous said...

Flott að allt gekk svona vel. Vonandi hristið þið fljótt af ykkur kvef og hálsbólgu :)

Enn og aftur til lukku með daginn! Gangi ykkur undirbúningurinn vel :)

Helga Dröfn - nýgifta :D

 
At 1:57 AM, Anonymous Anonymous said...

Ofurkrúttuð mynd:D
Æi þetta hlýtur að vera svakalegur munur fyrir stelpuna!
Leiðinlegt að þið séuð komnar með flensu, góðan bata!

 
At 8:35 AM, Blogger Ásta said...

Ég sendi þér sms um daginn Herborg! Fékkstu það ekki?
Takk fyrir, við erum frekar aumingjalegar. Jákup verður heima með Kristinu í dag af því að ég verð að fara í skólann. Og það er rigning. Og ég er með túrverki:(

 
At 12:41 PM, Anonymous Anonymous said...

Sæl frænka, gott að aðgerðin á Kristínu gekk vel og gangi þér vel í þinni aðgerð!!
Og til hamingju með væntanlegt brúðkaup, þetta verður yndislegt!
Varstu búin að frétta af litlu frænku þinni sem fæddist 8.nóv? Hún er yndisleg, tæpar 12 merkur og ég tók á móti...
Kveðja, Kaja.

 
At 7:35 PM, Blogger Ásta said...

Já og búin að sjá myndir! En ég vissi ekki að þú tókst á móti! Var það skipulagt eða tilviljun?
Takk fyrir, við hlökkum mikið til:)

 
At 5:17 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með dagsetninguna! Þetta verður gaman hjá ykkur.

Verð svo að segja þér að ég öfunda þig ekki að vera að fara í þessa aðgerð, Maggi fór í nefaðgerð fyrir 3 árum, var alveg lokuð vi nösin og hann fékk voða skemmtileg bómullarrör þrædd inn í nef og lengst aftur, varð að sofa sitjandi fyrst um sinn og var með köfnunartilfinningu, var svo allt í lagi þegar hann losnaði við þessi bómullarrör, var ekkert svo marinn en sumir fá rosalegt mar, sá það á HNE deildinni, húff púff, þú velur aldeilis tímann fyrir svona, gangi þér vel skvís! Hugsa hlýtt til þín á þriðjudaginn.

 
At 1:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Gangi þér vel í aðgerðinni!

 
At 10:20 AM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það Heiðdís! Uppörvandi lýsingar:S Vonandi lifi ég þetta af samt, ég krossa fingur fyrir því að niðurstaðan verði þess virði.
Takk Fjóla!

 

Post a Comment

<< Home