Tuesday, October 28, 2008

Ný rör í eyrun

Við Kristina vorum hjá eyrnalækninum. Hún er komin með vökva í bæði eyrun aftur, og honum finnst að við eigum að setja rör aftur. Annars verður þetta langur vetur, og hún heyrir svo illa. 10.nóv verður það. Aldrei friður fyrir svona læknadögum. En að sjálfsögðu vill ég að hún heyri aftur, hún er nógu eftir á með að tala fyrir:(

8 Comments:

At 12:21 PM, Anonymous Anonymous said...

Sæl frænka, mikið rosalega er Kristína Ósk orðin stór og mannaleg! Skil þig vel að nenna ekki þessu læknastússi, mér finnst hræðilega erfitt að horfa á börnin mín svæfð! Síðast þegar Sylvía var svæfð(til að fá rör) þá var svæfingalæknirinn pabbi Birkis, æskuvinar Lalla, og ég var svo fegin þegar ég sá að það var hann að ég fór næstum því að gráta!!
Já og Sylvía mín talaði eiginlega ekkert þegar hún var tveggja ára, og ég hafði þvílíkar áhyggjur, en svo allt í einu fór hún bara að tala!!
Og Sylvía spyr mjög reglulega um Kristínu Ósk og vill fá að fara og heimsækja hana!!
Kveðja,
Kaja og co.

 
At 3:08 PM, Blogger Disa said...

Æi stelpu greiið!

Kveðja,
Ásdís

 
At 9:10 PM, Blogger Ásta said...

Ég finn að þetta er að trufla hana, þótt hún sé vön þessu eyrnastússi. Okkur finnst líka hræðilega erfitt að sjá hana svæfða. Það er svo óeðlilegt eitthvað, að sjá þau detta svona út!
Nú verður nógur tíminn til að koma í heimsókn, við erum ekkert á leiðinni heim í bráð:( Þið ættuð kannski að taka mæðratúr hingað, kannski bara í lok janúar:)

:)

 
At 11:01 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég vona að hún fari að hrista þetta af sér stúlkukindin, svo foreldrarnir geti einbeitt sér að því að les og hafa gaman með henni!

 
At 11:22 AM, Anonymous Anonymous said...

Úps, gleymdi ad kvitta, ég skrifadi sídasta komment! Valdís

 
At 12:00 PM, Anonymous Anonymous said...

Æhh ætlar þetta að verða sagan endalausa með eyrun hennar?? ohhh þetta er svo erfitt líf - þetta eyrnabólgulif!! :( öfunda ykkur ekki af því.

Gangi ykkur vel að læra og leika. vonandi jafnar þetta eyrna vesen sig.

Kveðja frá okkur nýgiftu

 
At 1:07 PM, Anonymous Anonymous said...

Heyrðu getur tilvonandi læknir kvartað yfir LÆKNAtímum. ? hmmm
Ég er nú samt fegin að það er komin skýring á hversu illa hún hefur sofið
litla skottan mín.kysstu hana og knúsaðu mikið mikið frá mér

Ósk amma

Ein lítil í leikskóla Tedda greip í mig ,í síðustu heimsókn þangað, fékk mig til að beygja mig niður, og hvíslaði að mér " ég á líka ömmu -hún heitir Vala amma "

 
At 7:06 PM, Blogger Ásta said...

Hehe, ég er þreytt á að þurfa að eyða heilum degi í læknaheimsókn núna þegar við þurfum svona mikið að læra:) Þennan dag verð ég að vera heima með hana þótt hún fari ekki í aðgerð fyrr en kl.14, af því að hún má ekki borða síðustu 4 tímana fyrir, og þarf að fá verkjalyf osfrv. Við erum alltaf að missa af einhverri kennslu:(
Sniðug litla stelpan! haha

 

Post a Comment

<< Home