Vetrartími
Þá erum við samviskulega búin að stilla klukkuna klst til baka og kl. er því 8 núna í staðinn fyrir 9. Það hentar sér ágætlega, því Kristina er farin að sofna seinna og sofa til kl.8 á morgnana, og kannski er hægt að halda því þannig að hún sé að vakna kl.7 núna:)
Það er ótrúlegt hvað maður getur orðið reiður út í börnin sín! Kristina er búin að vera lasin alla vikuna, hefur verið lítil og ergileg, og það hefur reynt á okkur báðar. Það er alltaf leiðinlegt að hanga inni svona marga daga í röð og allir sofa illa. En í gær fórum við í mat til foreldra Jákups og komum einum of seint heim, um 20 leytið. Jákup fór út að skemmta sér og ég að koma Kristinu í rúmið. Hún var orðin hitalaus og átti núna að fara að sofa í rúminu sínu. Hún hefur meira að segja gert það alla vikuna án vandræða þrátt fyrir hita og hósta. En það var greinilega ekki málið í gær. Hún grenjaði og kom labbandi fram aftur og aftur og ég leiddi hana inn aftur. Kl. 22.15 var hún enn að, og þolinmæði mín á þrotum! Ég sem ætlaði að læra! Það endaði á því að ég sagði henni að fara bara að leika þegar hún kom fram enn eina ferðina. Svo burstaði ég tennurnar og sagðist sjálf vera farin að sofa og hvort hún ætlaði að koma með. Þá kom hún grenjandi með mér inn í mitt rúm og sofnaði fljótlega. En þetta var ekki mjög pædagogisk. Nú er ég með samviskubit yfir því hvað ég var reið og pirruð.

2 Comments:
Svona er þetta, maður getur ekki verið ánægður með sig sem foreldri alla daga og allar stundir.
Farðu með 90 maríubænir og lestu Jóhannesarguðsjpall til að greiða fyrir syndir þínar.
Kristinn
Því miður! Ég er búin að hýða mig 20 sinnum með hrýslu, reikna með að það sé nóg:)
Post a Comment
<< Home