Monday, October 27, 2008

Ég klippti hana:)

Vá hvað snúllan var glöð að fara til dagmömmunnar í morgun! Hún hljóp í fangið á henni og faðmaði hana. Svo er hún búin að vera eins og ljós í dag síðan hún kom heim og sofnaði um leið og hún lagðist niður. Rosalega getur manni þótt vænt um börnin sín líka:)
Nú er sem sagt friður og ró, en ég get ekki komið mér í gang við lærdóminn. Veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja með hjartasjúkdómana. Frekar mikið efni á einni viku. Og lítill tími til að læra. Er að fara með Kristinu til eyrnalæknis á morgun, og í mæðragrúppu annað kvöld. Á miðvikudaginn er auka kennsla, en við erum vön að geta lært þá daga. Þetta er mjög spennandi efni samt. Illu er best af lokið....:)
Á meðan ég man: Ef einhvern vantar afmælis- eða jólagjafahugmyndir handa Kristinu, þá er hún svo hrifin af Einari Áskeli að okkur vantar fleiri bækur. Hún vill lesa þær öll kvöld, og kallar þær pabba-bækurnar af því að pabbi hans er aukasöguhetjan:) Við eigum "Góða nótt E Á" og "Svei attan Einar Áskell".

8 Comments:

At 8:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Sæta sæta, mér finnst hún vera að stækka og þroskast svo mikið þessa dagana, af myndunum að dæma.


Góða nótt Einar Áskell og Sveiattann Einar Áskell eru langskemmtilegustu bækurnar um hann Einar Áskel. Ég veit ekki töluna á því hvað við höfum lesið þær oft hérna hjá okkur en merkilegt nokk fær maður ekki leið á þeim, ólíkt sumum öðrum bókum...

 
At 9:27 PM, Blogger Ásta said...

Hún er það líka, mér finnst ég líka sjá mikinn mun á henni. Litla stelpan mín er að verða stór. Fötin hennar eru allt í einu að verða of lítil (enn einu sinni, hehe) og hún er orðin svo mikil persóna. Þó hún hafi nú alltaf verið svolítið ákveðin:)
Mér finnst mun skemmtilegra að lesa góða nótt en sveiattan... En pabbinn er alla veganna mjög áhugaverður:)

 
At 10:11 PM, Anonymous Anonymous said...

Ji hvað hún er fín svona nýklippt!
Ertu ekkert að verða komin með uppí kok af að læra? stutt eftir hjá þér núna:D
Ánægð með bókasmekkinn hjá henni kristinu,ég elskaði sko Einar Áskel þegar ég var lítil og á ennþá gömlu bækurnar mínar, þá elstu fékk ég í 2ára afmælisgjöf, sem var nottla bara fyrir fáeinum árum;)

 
At 11:09 AM, Blogger herborg said...

rúsína:)

 
At 12:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Flott klipping, læknir hvað! Leggur bara hárgreiðslu fyrir þig :P

KT

 
At 3:55 PM, Blogger Ásta said...

Jú ég fæ alveg upp í kok inn á milli af lestri, en á hinn bóginn er ég vön þessu og finnst mest allt mjög spennandi. Það sem er þreytandi er að geta ekki lesið meira og að komast ekki yfir meira af efninu. Ég gæti t.d. notað auka dag á viku í upprifjun á því sem við erum búin með, en það er víst ekki hægt:)

Já er hún ekki fín?:D

 
At 1:04 AM, Blogger Halldís said...

hún er fínust og sætust!

 
At 11:17 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Sætust!

 

Post a Comment

<< Home