Þetta krútt...
Þá vitið þið það:)
Lífið heldur áfram hérna, en það hefur verið erfitt að einbeita sér að námi síðustu daga. Ég er bara fegin að það er haustfrí í næstu viku, og ég næ að lesa upp það sem ég er búin að trassa í þessari viku. Ég finn að það er komin smá lesþreyta í mig líka. Önnin er ca hálfnuð og það verður gott að þurfa ekki að fara í nýtt fag í næstu viku.
Aðalákvörðunin þessa dagana er, hvar við eigum að vinna eftir 3 mánuði. Óvænt ákvörðun, því við bjuggumst bara við að fara í kandídatspakkann og þurfa ekkert að hugsa fyrr en eftir ár:)

17 Comments:
Já - leiðinlegt að heyra, en skiljanlegt samt. Vonandi verður þetta orðið bærilegt næsta haust.
En er nokkuð mál fyrir lækna og læknanema að fá vinnu?? Eru það ekki frekar bankamenn og því tengdir sem eru í vandræðum?
Helga Dröfn
Það er ekkert mál fyrir okkur að fá vinnu, það er ekki ástæðan. Við skuldum peninga hérna úti, og það verður ekki gaman að borga það með íslenskum launum. Við erum á tvöfalt hærri launum hérna úti, auk þess sem við getum fengið mun ódýrara húsnæði og verið bíllaus. Við ætlum bara að gefa okkur smá tíma til að borga skuldir og lifa ódýrt (sem er ekki hægt á Íslandi) og koma frekar þegar ástandið er búið að róast, og þá vonandi með bankabókina í plús:)
Að auki er mun minna vinnuálag hér en heima, það er algjör bilun að vera unglæknir á landsspítalanum!!
Ég skil af hverju þú spyrð samt:) Ég var bara að meina ástandið í landinu, ég held að það eigi margir eftir að eiga bágt.
Leitt að heyra, það hefði verið gaman að fá ykkur heim. Skil ykkur samt vel. Gott að þið eigið kost á þessu.
Héðan er allt gott að frétta, það styttist í litla manninn, 28. okt. er settur dagur. Ég er að vinna í heimasíðu, ég sendi link og lykilorð þegar hún er tilbúin.
Bestu kveðjur,
Kristrún
Ég var einmitt að hugsa til þín í gær! Var að leita að þér á facebook. Ég sé að Bylgja er búin að eiga.
Gangi þér vel með síðustu dagana! Bíð spennt eftir heimasíðunni:)
Sniff, sniff! Skiljanleg ákvörðun samt. Mjög. Er sjálf að leita allra leiða til að koma mér úr landi, haha!
Vantar ykkur ekki au-pair?
=)
Thad eru engar sma frettir! Skiljum ykkur samt rosalega vel... ekki fysilegt ad fara heim! Gangi ykkur vel i vinnuleitinni.
Hehe, jú endilega Sigrún!
Já jú auðvitað er þetta ekki bara atvinnumarkaðurinn sem er óspennandi hér HEHE ótrúleg einfeldni í mér!! Enda er hálft ár til eða frá eftir allan þennan tíma kannski ekki til að svekkja sig á. Þó þið séuð búin að vera spennt yfir því lengi. Tíminn líður rosalega hratt og vonandi getið þið bara komið ykkur heim sem allra allra fyrst.
Gangi ykkur vel og við krossleggjum öll fingur um að ástandið nái jafnvægi sem allra allra fyrst hér sem annarstaðar í heiminum!
Knús HD
Æi ég trúi því að þetta hafi verið erfið ákvörðun og soldið súr, en hinsvegar held ég líka að þetta sé það besta í stöðunni fyrir ykkur.
Vonandi að vinnumálin gangi vel hjá ykkur og svo njótið þið þess bara að vera í Danmörku aðeins lengur og náið kannski bara að saxa soldið á skuldirnar áður en þið flytjið að lokum á klakann;)
Er ekki málið að vera bara bjartsýnn?;)
Jú, alveg rétt:) Vid sjáum margt gott í stødunni, vid elskum ad vera i Dannmørku. Thad eru margir hlutir hér sem vid munum sakna thegar vid flytjum. Um ad gera ad njóta theirra á medan hægt er;)
Æi en leiðinlegt að heyra en að sama skapi mjög skiljanlegt!
En eins og þú segir þá er margs að njóta þarna úti og það bara hið besta mál ... þetta er ekki svo langur tími eftir allt saman :)
Hvaða Dísa er þetta, Ásdís, Þórdís..?:) Ég reikna með Ásdís!
Já, tilfinningarnar eru eins og rússíbani. Annan daginn er ég sátt, hinn daginn reyni ég að finna allar ástæður fyrir því að fara heim samt!
Þegar ykkur taka að berast höfuð af íslenskum stjórnmálamönnum í pósti er tími kominn til að koma heim á Frón.
;)
Vonandi viljið þið enn koma heim eftir 24 ár þegar versta kreppan er liðin!
Kristinn
Ég frábið mér að fá stjórnmálahausa í póstinum;)
Við endurskoðum stöðuna þegar hætt er að henda Íslendingum út úr búðum fyrir þjóðernið. Ótrúlegt hvað er að gerast, manni líður eins og Þjóðverja nútímans.
Ha? Henda út úr búðum? Ertu að tala bókstaflega?
Ertu ekki búin að heyra fréttirnar af þeim sem hefur verið vísað úr búðum af því að þau voru Íslendingar? Í Danmörku og Bretlandi amk.
Post a Comment
<< Home