Friday, July 11, 2008

Ólafsvík

Komin til Ólafsvíkur. Númerið er 8411028.
Ég er ein á vaktinni hérna þangað til Jákup kemur á föstudaginn. Spennó!
Hér er manni sko hent út í djúpu laugina.... ég á að gera allt sjálf, röntgen, blóðprufur, skurðaðgerðir og fæðingar. Jedúddamía.
Bíllinn var svo troðinn á leiðinni hingað í gær, að við gátum ekki verslað í matinn í bónus nema það allra nauðsynlegasta fyrir daginn í dag. Það er klst akstur í bónus héðan og ég má ekkert fara. Þannig að við verðum að gera okkur okrið að góðu og versla hjá kaupmanninum. Ég er að fara að drífa mig "heim" að ná í mömmu og Kristinu og ákveða hvað á að vera í matinn. Það er gott að það er helgi framundan svo ég nái að melta allt sem ég er búin að heyra í dag, og lesa rest, og svo krossa ég fingur að það gerist engin stórslysin næsta mánuðinn;)

Takk fyrir allar kveðjurnar! Ég veit ekkert hvenær ég kemst í bæinn, en ég hringi í ykkur þegar svo verður og mæli mér mót.

5 Comments:

At 9:48 PM, Anonymous Anonymous said...

Velkomin á klakann og gangi þér vel í nýja krefjandi djobbinu. Þú hlýtur að læra rosalega mikið á þessu!
Er þetta heilsugæsla eða spítali?
Varla spítali á Ólafsvík.... :)

Helga Dröfn

 
At 11:10 PM, Anonymous Anonymous said...

Gangi þér rosalega vel í nýju vinnunni!:)
Hvað verðið þið þarna lengi? Þið eigið örugglega eftir að læra heilmikið af þessu.

 
At 3:22 PM, Blogger Ásta said...

Þetta er heilsugæsla. Við erum í mánuð hvort, ég aðeins á undan. Svo tek ég síðustu dagana hans líka, svo hann nái Norrænu.
Þetta verður reynsla í lagi, það er engin spurning:)

 
At 9:39 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Yes! Velkomin á Vesturlandið :) Þú rúllar þessu upp eins og öðru. Ég hef engar áhyggjur af því.

Verðum í sambandi!

 
At 10:58 AM, Blogger Ásta said...

Takk;)
Gerum það!

 

Post a Comment

<< Home