Það fæddist lítil stelpa í vinnunni í dag. Ég og ljósmóðirin tókum á móti henni. Alltaf fjör og gaman í sveitinni:)
Annars er vaktsíminn eiginlega ekkert búinn að hringja síðustu 3 dagana, og ég tek við vaktinni á morgun. Það eru allir sammála um það að það sé alltaf logn á undan storminum...hmmmm.
Jákup ætlar að skreppa í stórborgina á morgun að redda banka og skattamálum. Ég væri sko til í að vera að fara, og komast í klippingu og litun. Ég er eins og fuglahræða um hausinn!:(

7 Comments:
Vá, þetta hlýtur að hafa verið upplifun og ábyggilega mjög eftirminnilegt. Mér heyrðist á Jákupi í dag að hann hafi hálföfundað þig af þessu :D
Vá - já margt getur gerst í sveitinni.
Vonandi fáiði bara þokkalega rólega daga en samt margt til að læra af!
Helga Dröfn
Ji enn spennandi reynsla til að bæta við í reynslubunkann! Var þetta ekki annars fyrsta barn sem þú tekur á móti?
úff ekki minnast á klippingu, þyrfti sko nauðsynlega að komast í eina slíka!!!!!
Nei, ég hef reyndar verið viðstödd nokkrar fæðingar og hjálpað til:) En þetta er alltaf jafn skemmtilegt!
Komin úr klippingu og er allt önnur manneskja:)
Já, get rétt ímyndað mér að það sé spennandi!
Í hverju langar þig annars að sérhæfa þig?
Jæja gott að önnur okkur er allavega nýklippt;)
Þegar stórt er spurt:) Ég er ekki búin að ákveða mig, þarf að prófa ýmislegt fyrst.
Dríðu þig í klippingu stelpa;)
já það er eins gott að prófa margt áður en stóra ákvörðunin er tekinn.
Ég SKAL fara í klippingu áður en árið er liðið, finn mér kannski bara fína stofu í Skotlandi seinna í mánuðnum;)
Post a Comment
<< Home