Tuesday, July 08, 2008

París

Ég ætti að vera að pakka eða þrífa eða....en þá sest maður alltaf við tölvuna samt, og þá get ég alveg eins bloggað aðeins:)
Ferðin var vel heppnuð í flesta staði og við erum alsæl. Það var rigning og glampandi sól til skiptis. Grenjandi rigning á afmælisdaginn minn, akkurat þegar við vorum að hefja gönguna upp í Effelturninn. Við gengum alla leið, og Jákup bar Kristinu, bakpokann og regnhlíf. Ég bar regnhlíf:) Ég skildi ekkert í því hvað hann var ákveðinn í að fara alla leið upp, þrátt fyrir endalausar raðir og rigningu, þangað til ég sneri mér við á efstu hæðinni og hann og Kristina krupu á hnjám með hring. Hann lét Kristinu gefa mér hringinn sem hann var búinn að fela fyrir mér í marga daga. Ég sagði að sjálfsögðu já;)

*Tveir dagar í Disneylandi hefði verið nóg.
*Frakkar éta baquette brauð í morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Ég fékk nóg af því.
*Þjóðverjar kunna að bera fram góðan morgunmat en ömurlegan kvöldmat, Frakkar öfugt.
*Frakkar eru óóóótrúlega svifaseinir í þjónustu, þolinmæðin greinilega meiri en hjá Íslendingum.
*Djöfull er ég léleg í þýsku! Ég keypti mér OK á þýsku, og það er gott að ég kann nöfnin á fræga fólkinu, því það var umþaðbil það sem ég skildi eftir lesturinn.
*Ég komst í tölvu á hótelinu í Þýskalandi, og var heillengi að finna y á lyklaborðinu. Þeir nota greinilega z meira en við, vegna þess að þeir býtta y og z.

Það eru myndir á barnalandi.

10 Comments:

At 12:00 AM, Anonymous Anonymous said...

YNDISLEGT - til hamingju bæði tvö með hvort annað, og sætt að láta Kristinu afhenta þér hringinn :) ohhh dásamlegt.

Velkomin heim úr fríinu, eruði að fara að koma til íslands? Ekki koma með endalausa rigningu takk. Þetta góða veður er fínt, okey mætti koma dembur á nóttunni með þokunni en dagarnir eru fínir svona bjartir og sólríkir :)

Kossar og knús elsku Ásta og Jákup og til hamingju með trúlofunina :)
Helga Dröfn (og Lalli)

 
At 1:19 AM, Blogger herborg said...

Til lukku með trúlofunina:)!!- og afmælið um daginn!!

Hlakka til að sjá ykkur

 
At 8:11 AM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir:-D
Við komum heim í dag, ég reyni að skilja rigninguna hérna eftir;)

Sömuleiðis til hamingju með afmælið Herborg! hehe

 
At 1:06 PM, Anonymous Anonymous said...

Ji til hamingju með trúlofunina:) Svo krúttulegt að hafa Kristinu með í bóninni;)
Já og til hamingju með afmælið um daginn.
Góða ferð til Íslands

 
At 1:20 PM, Blogger Halldís said...

til hamingju sæta fólk! og myndirnar á barnalandi eru æði!

 
At 12:41 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Vei, vei! Innilega til hamingju bæði tvö :) Hrikalega sætt.

Hlakka mikið, mikið til að sjá ykkur hér á Vesturlandinu!

 
At 1:26 PM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju með trúlofunina elsku turtildúfur!!
Við hlökkum mikið til að sjá ykkur, ég er búin að semja við Kristinn og co að þau komi með ykkur að heimsækja okkur ef það er möguleiki!!
Enn og aftur til hamingju elsku Ásta og Jákup,
kveðja, Kaja og co.

 
At 1:06 PM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju!
Valdís og Gauti

 
At 4:24 PM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju turtildúfur!! :)

 
At 11:36 PM, Blogger Unknown said...

Frábært, æðislega til hamingju flotta fólk!

 

Post a Comment

<< Home