Thursday, July 17, 2008

Það er öðru hverju verið að spyrja mig hvort mér lítist ekki bara vel á bæinn. Ég get litlu svarað um það. Ég fór í búð á laugardaginn, á leiðinni út úr búðinni hríngdi síminn. Á sunnudaginn fór ég á róló með Kristinu í 20mín, þá hringdi síminn. Í gær, miðvikudag, fór ég í sjoppuna með mömmu, Kristinu, Tedda, Guðrúnu, Kristni og Kötlu að kaupa ís. Annars hef ég verið hér á heilsugæslustöðinni eða heima að borða og sofa! Alltaf að vinna. En kvöldið í gær var frekar rólegt, í fyrsta sinn sem ég kom. En ég er nú þegar búin að læra alveg heilan helling:)
Jákup kemur í kvöld. Ég og Kristina hlökkum til, en hann er alveg að fríka út! Ég er sem betur fer búin að hafa hana hjá mér allan tímann, en hann greyið einn. Það verður gott að fá hann, og verða laus við vaktina í nokkra daga;) hihi

Það er gaman að hafa heimsókn, þótt við mamma og Kristina höfum haft það gott. En það jafnast ekkert á við að fá að knúsa lítið kríli með ungbarnalykt:-)

5 Comments:

At 5:02 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með trúlofunina, rómantík í loftinu í parís, var einmitt sama staða hjá okkur fyrir 2 árum en það var efst í parísarhjólinu, maggi vildi ekki vera einsog tom cruise hehe. Knús til ykkar frá veika lækninum. gangi ykkur vel að lækna fólk.
kveðja
Heiðdis

 
At 11:11 PM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það:)
Ertu ennþá lasin?

 
At 9:29 PM, Blogger Unknown said...

Til lukku með hringana ;) Vona að allt gangi vel í sveitinni. Knús til ykkar allra :*

 
At 9:38 PM, Blogger Ásta said...

Takk;) Það gengur allt mjög vel, það er bara huggulegt í sveitinni:)
Ég verð ekkert öfundsjúk þegar ég sé veðurspánna í danmörku fyrir komandi viku, hehe. Njóttu vel!

 
At 10:07 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju med trulofunina;) Hvernig gengur læknalifid? Kristinu er sart saknad herna, Klara spyr um hana a nanast hverjum degi og man enntha hvada smekk Kristina fekk lanadan herna einhvern timann!! Kh Sigga

 

Post a Comment

<< Home