Thursday, March 13, 2008

Löggulíf

Ég var að keyra heim úr vinnunni í morgun og það gekk ansi greiðlega fyrir sig, enda var ég að keyra á 140km/klst:) Þegar ég var komin 2/3 leiðarinnar keyrði ég hins vegar fram á lögreglubíl. Það gerði ég líka síðast þegar ég var að vinna. Það er ansi skondin sjón. Það myndast allt í einu hálfgerður umferðartappi þar sem enginn þorir að taka fram úr löggunni, og í hvert sinn sem löggan tekur framúr vörubíl og skiptir svo aftur um akrein, fylgir honum löng röð af bílum sem haga sér eins. Maður sér m.a. Audi A6 keyra allt í einu á 110, það eru annars bílarnir sem undantekningalaust taka fram úr mér! Svo sér maður bíla koma á fullu í vinstri akrein, bremsa um leið og þeir sjá hvíta bílinn og lauma sér í röðina á bakvið hina. Lögreglunni hlýtur að vera ansi skemmt yfir því að fá alltaf svona líkfylgd á hraðbrautinni:-D

Ég er alveg að verða vitlaus á öllum þeim e-mail adressum sem ég er með á sama fólkið. Ég veit aldrei hvað ég á að nota. Hættið að skipta um vinnu og nettengingar! Eruð þið svo væn gott fólk að kommenta með þeirri adressu sem þið notið? Og þetta gildir ekki minnst mína ástkæru fjölskyldu! Og Ásdísi og Arndísi, ef þið lesið þetta:)

5 Comments:

At 12:51 AM, Anonymous Anonymous said...

Við notum mest:

gudrunpalina@yahoo.com
kiddithe@btnet.is

:)

 
At 7:13 AM, Blogger Ásta said...

Glæsilegt, takk fyrir það;)

 
At 10:53 PM, Anonymous Anonymous said...

HEHEHE kannast við þetta af klakanum - allt nema að keyra á 140! En þegar löggan er á ferð hehehhehehee þá eru allir voða stilltir. Mjög fyndið. Ég ætla svo sem ekki að fara að bruna framúr löggunni hehee..
hd (hjá) heilsunuddarinn.com eða hd (hjá) slepja.com og lalli (hjá) slepja.com er alltaf í notkun hjá okkur hjúum :)
Helga Dröfn & Lalli - góða ferð heim til íslands eða eruði komin?

 
At 9:56 AM, Blogger Ásta said...

Neibb, komum á morgun!:)

 
At 12:55 PM, Blogger Disa said...

Hæ hæ Skvís,

Þú ert nú meiri glanninn! keyrir á 140 km hraða!

ég nota asdisk@gmail.com :)

Svo kannski segi ég þér fréttir ef þú ert ekki búin að frétta það. Er komin 17 vikur á leið :)

kv.
Ásdís

 

Post a Comment

<< Home