Fyrsta vikan
Fyrsta vikan í klinik liðin og Kristina búin að vera veik í 3 daga. Ég var heima á miðvikudaginn, Jákup í gær, og í dag bjargaði Annie okkur algjörlega, eða mér, því Jákup var að vinna. Þannig að ég missti bara einn dag á barnadeildinni. Það er mjög gaman og spennandi á deildinni og ég sé svo margt nýtt á hverjum degi. Í dag fékk ég að skoða tvö nýfædd börn, hlusta þau og skera úr um hvort allt sé eins og það á að vera. Það ískraði í eggjastokkunum!!!:-D Á mánudaginn fer ég á krabbameinsdeild fyrir börn, og á eflaust eftir að finnast það svolítið erfitt:(
Við erum að venjast því að vera í fullri vinnu, og þreytan að lagast. Við Jákup nýttum tækifærið í gærkveldi og fórum út að hlaupa á meðan Annie passaði fyrir okkur. Það var hressandi þrátt fyrir að kvöldmaturinn hafi verið eins og grjót í maganum á mér! Ég fór nefnilega út að borða með Lene og fékk mér nachos með kjúkling. Mæli ekki með því rétt fyrir hlaup.
Stefnan er tekin á ýmis kvennahlaup í vor, þannig að það er um að gera að koma sér í form og losa sig við smá aukakíló:)
Ísland eftir viku! Hlakka mikið til! Það verður eflaust jafn brjálað og venjulega með heimsóknir og hittinga, því manni finnst í hvert einasta skipti að maður verði að ná að hitta alla. En það er bara ekki hægt. Við erum sem betur fer að fara í fermingu, þannig að ég næ að hitta aðra fjölskylduna á einu bretti þar:) En það verður gott að sjá fjölskylduna, við erum ekki búin að koma heim síðan í október.

2 Comments:
skil vel að það hafi ískrað hátt við að skoða litlu krílin;)
En úff hvað það verður örugglega erfitt á krabbameinsdeildinni, en ég hugsa að það verði mjög gefandi líka!
Góða skemmtun hér á klakanum, hentugt að fara í veislu og hitta svona marga í einu;)
Já, það var augljóst fyrir allt og alla hvað ég var hrifin:) hehe
Ég á örugglega eftir að læra fullt á krabbameinsdeildinni, en það á eftir að vera erfitt. Ef ég fæ að gera eitthvað þeas, því Kristina er svo hrikalega kvefuð og ég vona að ég smitist ekki, því þá má ég ekki koma nálægt sjúklingunum!
Post a Comment
<< Home