Thursday, March 27, 2008

Ólafsvík here we come!

Við erum bæði komin með stöðu á Ólafsvík í mánuð í sumar:-D Mamma stóð sig eins og hetja á fundinum fyrir okkur! Þá er eins gott að fara að rifja upp námsefnið, hehehe...

7 Comments:

At 6:06 AM, Blogger Disa said...

Til hamingju með það, flott að geta verið á saman staðnum!
Verðið þið með sitthvort svæðið, eða hvernig virkar þetta ?

kv.
Ásdís

 
At 9:06 AM, Blogger Unknown said...

Til lukku með það:)

 
At 11:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með það!

Ólafsvík er fínn staður. Endilega farið vel með allt skyldfólkið mitt þar (sem eru ansi margir!) ,-)

Kannski við Baldur og litla skvís kíkjum þá bara vestur í sumar.

Kveðja Gunnhildur Ásta

 
At 3:48 PM, Blogger Ásta said...

Við verðum, að ég held, bæði að vinna dagvinnu og skiptumst svo á að vera á vakt á kvöldin og um helgar. Við erum bæði í Ólafsvík.

Gunnhildur: Mér finnst þetta vera svo lítill staður, og þú ert önnur manneskjan sem ég þekki sem á stóra fjölskyldu þarna:) Fyndið!
Endilega kíkja í heimsókn!!:)

Þetta verður spennandi, ég hef aldrei búið á svona litlum stað, ekki einu sinni tímabundið. En við eigum amk ekki eftir að eyða öllum sumarlaununum okkar í vitleysu, það er örugglega ekki mikið hægt að eyða í; ) hihi

 
At 11:14 PM, Blogger herborg said...

til lukku með það! Þetta verður ævintýri!:)

 
At 5:27 PM, Anonymous Anonymous said...

Frábært - til lukku. En bara mánuð? Er það nóg?
Ég þekki líka eina frá Ólafsvík sem á stóra fjölskyldu þar :)

Helga Dröfn

 
At 8:17 AM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það!
Við erum bara í 2ja mánaða sumarfríi og erum bara fegin að fá smá frí líka:) Við erum þó að vinna svolítið á skjön hvort við annað, því ég byrja 11.júlí en hann ekki fyrr en 18.júlí, og ég klára svo á undan honum. Við vorum líka bara heppin að fá stöðu á sama stað, og þar sem við getum ekki unnið í júní, gátum við ekki fengið hvaða stöðu sem er. Flestar stöðurnar byrja í júní.

 

Post a Comment

<< Home