Veikindi og pössun
Ég sagði það í síðustu viku, og það stóðst! Kristina er búin að vera svo hraust í svo marga mánuði, akkurat á meðan við vorum heima að skrifa verkefni og hún vel getið verið heima. Hún er búin að vera kvefuð 2-3 sinnum og fékk í augun og niðurgang eina vikuna, en ég tel það ekki mikið, þar sem hún var bara heima einn dag. En ég sagði í síðustu viku að það væri klassískt ef það kæmi holskefla af veikindum núna þegar við erum byrjuð í praktík bæði tvö. Og hvað gerist? Kristina hóstaði bókstaflega í alla nótt og var með hita, þannig að ég varð að vera heima með hana í dag. Hún er að vísu nokkuð brött núna, er að leika sér á fullu, og er búin að borða stöðugt, þannig að það er ekki alvarlegt. Vonandi get ég farið með hana til dagmömmunnar á morgun eða í síðasta lagi á föstudaginn.
Þá er best að nýta daginn í eitthvað nytsamlegt! Við erum búnar að fara í búðina og kaupa fullt af hollum mat, og Kristina fékk að passa vínberin á leiðinni heim. Pakkinn var fljótlega opnaður og vínber út um alla kerru:) Svo erum við búnar að henda sængunum út til viðrings og þvo eldhúsgólfið. Ekki amalegt.
Við vorum með lítinn snáða í pössun í gær fram á kvöld. Mamma hans er í læknisfræðinni og þurfti að vera á vakt fram á kvöld, og pabbinn að keppa í borðtennis. Það gekk vonum framar. Hann fékk fisk með okkur í kvöldmatinn, og svo léku þau sér þangað til þau áttu að fara að sofa. Þá kom smá frekjugen fram í minni, hann mátti ekki leika sér með hvað sem er! En við reyndum að stoppa það af. Þau voru svo sett í sitthvort herbergið, og héldu vöku fyrir hverju öðru í hálftíma, því þau grenjuðu til skiptis. En svo sofnaði Kristina og Andreas sofnaði nokkru seinna eftir mikið brölt. Ég var steinsofnuð þegar pabbi hans kom að sækja hann, Jákup sá um afhendinguna, og í morgun kom í ljós að tveir pabbar eru gleymnari en ein mamma. Skórnir hans, úlpan og húfan urðu hérna eftir! Vonandi náði Kristina ekki að smita hann af einhverru flensu:)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home