Sunday, June 17, 2007

Hæ hó jibbíjei...


..það er kominn 17.júní!

Við systurnar og litla gerpið ætlum að skreppa niður í Fruens Böge og borða grillaðar pylsur með hinum Íslendingunum í rigningunni:) Kannski verður hægt að kaupa íslenskt nammi og Egils appelsín?:-o
Kristina hélt aldeilis vöku fyrir foreldrum sínum í nótt. Hún vaknaði amk á klst fresti og grenjaði, og vildi svo fara á fætur kl.5. Við erum ekki úthvíld í dag! Nú situr hún í fanginu á mér og slefar mig alla út af því að hún er að naga mini-gúrku. Það er sko aldeilis gaman! Ég held að hún sé að taka tennur....hvað er ég búin að segja þetta oft??

2 Comments:

At 12:33 PM, Anonymous Anonymous said...

ætlum kannski ad rúnta nidrí fruens á mótorhjólinu á eftir, rekumst kannski á ykkur;)

 
At 4:45 PM, Anonymous Anonymous said...

HAha það er svo frábært hvað börn eru liðug!
Gleðilega þjóðhátíð, og verði ykkur nammið að góðu. Hérna er EKKI típískt þjóðhátíðarveður, hálfskýjað og hæglætisveður, reyndar gola. En EKKI hvasst :) og ekki rigning..ekki ennþá!!

Helga Dröfn

 

Post a Comment

<< Home