Wednesday, June 13, 2007

Kvennahlaup



Ég tók þátt í kvennahlaupi í dag og hljóp 5km á 28.53 mín. Ég er sátt við árangurinn, enda ekki mjög upplögð áður en haldið var af stað! Svo notar maður fyrstu mínúturnar í að berjast áfram á þessum þröngu göngustígum og bölva öllum feitu rössunum sem eru fyrir manni á leiðinni;-)
Ég fékk fullan poka af gjöfum, gos og snakk, auk þess sem númerið mitt var dregið út og ég vann íþróttatösku. Allt í allt mjög fínt:D
Dóra passaði fyrir okkur á meðan, því Jákup var í fótbolta, og gerði það með stakri prýði. Kristina lét frænku sína hafa svolítið fyrir sér, því Dóra fór með hana út að ganga, og þurfti að halda á henni undir lokin og ýta á undan sér barnavagninum. Þegar við komum heim var hún búin að borða, búin í baði og komin í náttföt og brosti út að eyrum. Algjör lúxus!:)

7 Comments:

At 2:29 AM, Anonymous Anonymous said...

Sæl aftur frænka! Jú, þetta boð stendur sko alveg hvenær sem er elsku Ásta mín, og ef þú vilt koma aftur í júlí þá er húsið mitt tómt frá 16.júlí -2.ágúst því þá verðum við á Spáni!!!
Hrikalega ertu dugleg að hlaupa, mitt met í 5 km er 30.16 (en ég er náttúrulega orðin svo gömul!!)
Já, þau eru nú meiri hetjurnar hann Kristinn bróðir þinn og hún Guðrún. Maður skilur bara ekki hvernig lífið getur verið svona skrítið. Þau eru kominn með ansi stóran reynslubanka, mér finnst þau bara standa sig alveg ótrúlega vel í þessu öllu saman. Hugur minn er sko búinn að vera hjá þeim síðustu daga.
Hlakka til að sjá ykkur vonandi núna í júní!!!
Knús, Kaja.

 
At 2:49 AM, Blogger Halldís said...

dulleg! er búin að senda meil útaf netinu hjá mér og gaurinn ætlaði að svara mér á mánudaginn, ekkert enn! týpískt danskt. Ætla að ýta á eftir þessu... vona að það sé í lagi ;) hafið það gott sæta fjölskylda...

 
At 4:46 PM, Blogger Ásta said...

Takk kærlega fyrir það! Gott að vita af því:) Við verðum víst heima á Fjóni í júlí, erum að byrja að vinna á geðdeild bæði tvö til skiptis. Það hefði annars verið tilvalið.
30.16 er líka mjög fínn tími! Miðað við aldur og fyrri störf, hehehe:-)

Halldís: Danir! Þetta er ekkert stress, hún notar bara netið hjá okkur þangað til:)

 
At 2:32 AM, Anonymous Anonymous said...

Vá dugnaðurinn í þér!
Gott að eiga góða systir, hún Dóra stendur sig greinilega með prýði:)
Hlakka til að sjá ykkur

 
At 10:22 PM, Anonymous Anonymous said...

Hey ég þekki greinilega kristinu ósk í sjón því ég sá einhverja konu með hana að ganga yfir gangbrautina úr bænum á leið heim, með hana á handleggnum, ég alveg þetta er kristina! Var að keyra vinkonu mína á lestarstöðina. Svo les ég hér að það var frænka að passa hana á miðvikudaginn. Hehe svo þetta var hún! Vildi ég myndi drösla mínum rass í hlaup öðru hvoru, held stundum ég sé í hreyfingarverkfalli... kveðja heiðdís

 
At 1:46 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohh það mættu fleiri taka þig til fyrirmyndar!! Huhumm nefni engin nöfn...

Spurning hvort það sé ekki til pilla við leti??? HAHAHA

kv Helga Dröfn - anti pilluétari

 
At 1:04 PM, Blogger Ásta said...

Heiðdís: Hehe, já glögg ertu:)

HD: Engin pilla, því miður:) Bara beinharður sjálfsagi...þegar ég er ekki löt, hehe;-)

 

Post a Comment

<< Home