Monday, June 11, 2007

Hitakóf!

Hér er svo heitt að það er engu laginu líkt! Í dag var yfir 30 stiga hiti:) Ég fagnaði í undirmeðvitundinni, enda svo djúpt gróið í mann að því heitara því betra! En meðvitundin bölvaði hitanum af því að litli strumpurinn minn skilur ekkert í þessu og getur varla sofið né borðað:( Auk þess get ég ekkert legið í sólbaði með hana með mér, þannig að við erum bara í skugganum úti í garði saman. Í gær var allur mannskapurinn í húsinu okkar saman kominn úti í garði þar sem við borðuðum saman hádegis- og kvöldmat, spiluðum og lágum í hengirúmum. Voða kósý. Það er samt altaf auðveldara að fá krílin til að sofa í garðinum þegar hann er tómur, þannig að við fögnuðum því að kominn væri virkur dagur í dag! Við Jákup fylltum lítinn bala af volgu vatni í gær og leyfðum Kristinu að busla í honum. Okkur fannst við voða sniðug, en hún nennti því ekki til lengdar, vildi bara brjóst. Þau eru í miklu uppáhaldi hjá henni. Ég sé fram á að vera með hana á spena til þrítugs:-o Hún vill helst liggja á brjósti 6 sinnum á nóttu, og skynsemin segir mér að fara að stoppa þetta, en þegar maður er að leka niður úr þreytu mörgum sinnum á nóttu, gerir maður hvað sem er til þess að fá að sofna aftur.....
Hjúkkan kemur í heimsókn á morgun, sjáum til hvað hún segir við þessu öllu saman.
Á miðvikudaginn er ég að fara að hlaupa 5km kvennahlaup. Sem betur fer á að rigna þann daginn:) Ég hljóp 5km um daginn í 27 stiga hita kl.12 um daginn og hélt að ég myndi fá hitaslag á leiðinni!!

2 Comments:

At 6:46 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ, kæra frænka, er búin að vera lengi á leiðinni að senda þér smá póst, ætlaði að bjóða ykkur ef þið vera hjá mér á meðan þið eruð á Íslandi. Þið getið alveg fengið annað herbergið niðri í kjallara og þar er rúm sem er 120 cm á breidd. Svo gætum við fengið ferðarúm fyrir Kristínu litlu. Okkur þætti bara gaman að hafa ykkur. Herbergið er stórt og það er wc og sturta niðri, og sérinngangur!! Alla vega ef þið viljið þá eru þið velkomin!!
Knús og kossar frá mér og samúðarkveðjur vegna Emmu litlu. Ég var að lesa pistilinn hans Kristins og gráta. Lífið getur verið óréttlátt.
Kveðja, Kaja frænka

 
At 10:26 PM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir æðislega gott boð! Þegar Jákup kemur með okkur heim næst munum við eflaust fegin taka því, en við Kristina erum bara tvær í þetta skiptið og ætlum að sofa uppí hjá mömmu af því að pabbi er að fara til Japan þessa daga sem við erum heima. Þá getur mamma líka hjálpað mér meira með litla lukkutröllið:) En það er gott að vita af svona góðu boði, við erum búin að vera hikandi með að koma öll þrjú því við vissum ekki hvar við ættum að vera:) Ef boðið stendur enn næst!;-)
Hlakka til að sjá ykkur þegar við komum. Ég lofa heimsókn í þetta skiptið!
Já lífið er sko ekki réttlátt. Pistillinn hans er fallegur og það er ótrúlega stórt af þeim að leyfa okkur að taka þátt í þessu með þeim.

 

Post a Comment

<< Home