Emma
Ég er búin að vera í nokkra daga að reyna að koma þessu í orð. Ég átti að eignast litla bróðurdóttur. Litla frænka mín fékk ekki að lifa. Hún fékk nafnið Emma, sem mér þykir afskaplega fallegt. Ég er svo glöð að vera til á þessum tíma, þar sem allt er mögulegt, og ég gat fengið sendar myndir af henni þótt að ég sé hinum megin Atlantshafsins. Hún var alveg ótrúlega fullkomin og svakalega lík stóra bróður sínum. Fallega litla stelpan sem við hefðum elskað svo mikið. En við gleymum henni aldrei. Elsku bróðir minn, Guðrún og Teddi, þetta er harður heimur.

4 Comments:
Ásta mín, en leiðinlegt að heyra, ótrúlegt hvað lífið getur stundum verið ósanngjarnt.
Verð að segja að ég dáist af hlaupadugnaðinum í þér!
Ég ætlaði að vera löngu búin að kíkja í heimsókn til ykkar og leika smá við Kristínu Ósk en tíminn flýgur og það styttist í próf og Íslandsför.
Farið þið ekki eitthvað heim í sumar? Kannski maður rekist bara á þig þar!
Knús
Takk fyrir það Ragnheiður!
Við kíkjum bara til Íslands í eina viku, og það eftir 12 daga, þannig að við sjáumst líklega bara aftur í haust:) Nema að við rekumst á þig í bænum. Annað eins hefur gerst:-D
Gangi þér vel í prófinu og góða ferð heim!
Þið eigið alla mína samúð. Lífið getur verið svo ósanngjarnt og erfitt!
Ég ákvað einmitt að ganni í gær að kíkja á bloggið hjá Kristni útfrá þínu og sá þá þennan líka svakalega pistil og endaði grátandi fyrir framan tölvuna (ekki annað hægt).
En mikið rosalega er þetta vel skrifað hjá honum og fallegar og friðsælar myndir.
Knús frá mér til þín á þessum erfiða tíma
Mig skortir orð. Sorglegt og ósanngjarnt.
Knús og bestu kveðjur til fjölskyldunnar.
Post a Comment
<< Home