Saturday, December 09, 2006

HAhaha

Hélduð þið að ég væri farin af stað?? Aldeilis ekki! :) En.....pílurnar eru að aukast, lofi sé drottni!
Við fórum á árlegt jólahlaðborð í húsinu okkar í gærkveldi. Ég hafði ekki reiknað með að komast og hafði því ekkert fylgst með hvað við áttum að hafa með okkur. En við áttum að taka grafinn lax og sósu (sem ég mundi eftir) og 2 pakka pr par fyrir pakkaleik (sem ég mundi ekki eftir). Jákup hljóp því niður og snaraði í pakka. Nágrannarnir vildu þó helst setja litla barnið í pakkaleikinn, og sögðu það gilda fyrir tvo pakka. Billigt sloppið, ha? Við enduðum með að vinna økologisk hindberja- og vanillumarmelade og borða með danska fánanum. Gat það verið meira danskt??
Nágrannarnir tjáðu okkur einnig að það væru búnar að vera miklar spekulationer í kringum það hvort við værum búin að eiga. Það voru hin ýmsu komment um að það væri svo hljótt hjá okkur: við hlutum að vera á spítalanum, að barnavagninn væri ekki kominn: ekki búin að eiga, slökkt ljós: búin að eiga osfrv... J er búinn að lofa að skrifa það niður á töflu þegar barnið fæðist. Hann afþakkaði tilboð um að banka hjá hverjum og einum:-)

4 Comments:

At 4:10 PM, Anonymous Anonymous said...

Við bíðum enn spennt:D

-Vala og co.

 
At 6:48 PM, Blogger Halldís said...

jæja þá er ég komin heim, hlakka til að sjá ykkur eftir 2 mánuði! úff alltof langt þangaðtil. en ég mun fylgjast spennt með síðunni!

 
At 7:10 PM, Anonymous Anonymous said...

Híhí nú veit ég af hverju jákup var ekki í skólanum á föstudaginn, það er sko fylgst með honum, vonandi fer eitthvað gerast bráðum... Þetta með pakkaleikinn guð ég hef ekki áður farið í hann með dönum en var í julehygge með matarklúbbnum í gær og vá hvað fólk var með mikið rugl í pökkunum, sem engan langaði í. Ég sem keypti voða flott jólaskraut og líka hinir útlendingarnir meðan danirnir voru með eitthvað algjört rugl. jæja veit það næst. knús heiðdís

 
At 9:25 PM, Blogger Ásta said...

Sammála þér Heiðdís! Þvílíku rugl gjafirnar sem voru í sumum pökkunum! En við getum ekki sagt mikið, við mundum ekki einu sinni eftir því og pökkuðum bara inn rauðvíni og nammi á seinustu stundu:)
J fékk sms á föstudaginn: er eitthvað að gerast?? Sannleikurinn var sá að hann hélt að það væri bara kommunikation og var að skrópa, komst fyrst að því eftir á að það voru fyrirlestrar allan daginn;-)

 

Post a Comment

<< Home