Tuesday, December 05, 2006

Dagurinn er kominn!

Litla stelpan mín ætlar að koma þegar hún ákveður það sjálf. Ég verð bara að bíða eftir henni. Ég lét hreyfa við belgnum í morgun, sem var vont á meðan á stóð, en hef ekki fundið fyrir neinu síðan. Við verðum bara að vera þolinmóð og finna okkur eitthvað að gera:) Ég verð að segja að eftir upplifun mína í morgun, er ég ekkert rosalega spennt fyrir því að koma þessu barni út!:-/ Mjög vont....
Við buðum Halldísi vinkonu í mat í gær og tókum fram jólamatardiskana okkar. Það er jólastemning hér á bæ:) Við fengum nautatornedoes og ofnbakaðar kartöflur með 1L af sósu í matinn! Ég var ekki alveg að reikna sósumagnið rétt:-D
Svo erum við hjúin bæði komin með nýja síma! Jákup keypti handa mér þennan:

Motorola RAZR V3i Dolce & Gabbana







Og ég keypti handa honum þennan:


Sony Ericsson W810i

9 Comments:

At 5:45 PM, Blogger Halldís said...

namminamm, sósan var góð ;) og DogG síminn þinn er auðvitað mesti pæjusími í heiminum, með blingbling og öllu!

 
At 7:10 PM, Anonymous Anonymous said...

Flottir símar, mér finnst þinn æði, hefði örugglega valið svona síma líka. Jákup var einmitt að sýna strákunum símann sinn í dag, strákar og tæki;) Hann ætti að vera tilbúinn fyrir "átökin" eftir daginn í dag, rosa pró að taka á móti dúkkunum í dag, híhí. Vonum að hún láti ekki bíða eftir sér mjög lengi stelpan. knús heiðdís

 
At 9:14 PM, Anonymous Anonymous said...

Þetta fer að bresta á! Finn það á mér :)

Kv Helga Dröfn

p.s í síðasta lagi 18. des híhí

 
At 10:23 PM, Blogger Ásta said...

Gott að það finnur það einhver á sér;-) Ekki geri ég það....
Símarnir eru æði. Ég er þó smá abbó útí símann hans, því hann er með útvarp. En minn er blingbling!

 
At 8:38 PM, Anonymous Anonymous said...

Djíses er hún strax byrjuð að heimta athygli? Allir að bíða spenntir eftir henni hehehe eða kannski er bara svona notalegt í bumbunni þinni ;) Verð bara að minna á að Jákup verður að skrifa fréttir á bloggið þitt eða á síðuna hjá litlu prisessunni á bauninni eins fljótt og hann getur!
Hlakka til að heyra meira
Baráttukveðja ;) Helena

 
At 9:41 PM, Blogger herborg said...

puuuuush! frá mér.... hehehe

 
At 10:33 PM, Blogger Ásta said...

Á núverandi tímapunkti held ég að ég græði lítið á því annað en gyllinæð!:) Ef þið eruð óþolinmóð hvernig haldiði þá að ég sé???

Jákup er búinn að fá einkakennslu í að setja inn myndir á barnaland, veit ekki hversu mikið hann skrifar:) Sjáum hversu mikið hann man...

 
At 10:58 PM, Blogger herborg said...

Ég meinti nú bara þegar að því kemur hehhehe.... ég vil nú ekki að þú fáir gyllinæð:)

 
At 11:03 PM, Blogger Ásta said...

Too late!! Too much information?? Hehehehe

 

Post a Comment

<< Home