Tuesday, December 26, 2006

Jól og nafngjöf



Síðan síðast:
Fæðing
Heimkoma

Fjölskyldan komin í heimsókn frá Íslandi og Færeyjum

Jól


Loksins ákvað litla krílið að láta sjá sig. Það gerðist 16.des.
Nú eru jólin að verða búin og mamma, pabbi, Dóra, Gunnar og amma eru að fara heim á morgun. Það verður tómt í kotinu næstu daga. Það er ágætt að Jákup á ekki að mæta í skólann fyrr en eftir áramót, svo viðbrigðin verði í smá skömmtum. Ég hef ekki verið ein heima með stelpuna nema tvisvar í fáeina klst síðan ég kom heim af spítalanum. Það hefur verið gott að hafa svona margar hendur til þess að skiptast á að halda á henni á þessum erilsama tíma. Hún hefur líka verið mjög óróleg á nóttinni flestar nætur og grátið í nokkra tíma. Í nótt fór hún ekki að sofa fyrr en kl. 7.30 um morguninn, og við Jákup búin að skiptast á að ganga um með hana alla nóttina. Þetta er vonandi bara tímabundið! Við erum orðin ansi lúin... Hún er hæstánægð þegar stofan er full af fólki, þá sefur hún best í vöggunni á milli okkar allra.
Við héldum jólin báðar fjölskyldur saman, og það var virkilega vel heppnað og huggulegt. Ég hef aldrei séð jafn margar jólagjafir undir jólatrénu áður! Og við vorum helminginn af kvöldinu að opna gjafir handa litla krílinu. Takk fyrir okkur allir!:-)
Stúlkubarnið er búin að fá nafn. Hún heitir Kristina Ósk Jákupsdóttir. Skírnin fer þó ekki fram fyrr en um páskana. Hún er nefnd eftir báðum ömmum, en það skipti okkur máli að finna nafn sem gengur í öllum þremur löndum:)

5 Comments:

At 9:54 AM, Blogger Disa said...

Innilega til hamingju enn og aftur! :)
Vonandi fer hún að sofa betur fljótlega!

 
At 2:06 PM, Blogger Halldís said...

verð að segja enn og aftur hvað
Kristina Ósk er dásamlega falleg, og gaman að sjá þessa skemmtilegu fjölskyldumynd :)

 
At 2:30 PM, Anonymous Anonymous said...

Gleðileg jól litla fjölskylda
Ég verð nú eiginlega að segja að mér finnst Kristina Ósk ótrúlega flott nafn og kannski soldið flottara en Ragndís Lena! Þið geymið það þá bara þanngað til næst ;) hehe. Ég hlakka ekkert smá til að fá að kíkja í heimsókn til ykkar þegar ég kem aftur út!
Hafið þið það gott og veriði rosa dugleg við að setja inn myndir.
Knús Helena

 
At 10:45 PM, Anonymous Anonymous said...

Frábærar myndir - hlakka einmitt til að sjá fleiri myndir á síðunni hennar Kristinu Óskar. Jólamyndir og allt :)

Stelpan er meiriháttar. Verst hvað næturnar eru erfiðar :) Öfunda ykkur ekkert rosalega af því!

En innilega til hamingju með að vera loksins komin með hana í hendurnar. Þið eruð ekkert smá flott fjölskylda, þið 3 og þið öll á þessari stóru flottu mynd.

Knúsar og gleðilega hátíð Helga Dröfn og Lalli

 
At 2:30 AM, Blogger Óli said...

Innilega til hamingju frá okkur á Hagamelnum. Hún Kristina Ósk er glæsileg ung dama og alveg gullfalleg eins og foreldrarnir. Eigi þið gleðileg jól og áramót. Vona að við fáum að hitta ykkur sem fyrst.
kveðja
Óli, Vala og Matthildur Agla

 

Post a Comment

<< Home