Friday, December 01, 2006

Ekkert....

að gerast:( Við erum bara búin að búa til aðventukrans, setja upp jólaseríu, skrifa jólakort og kaupa nokkrar jólagjafir. Svo er mamma auðvitað ofvirk í prjónaskapnum:)
Við fórum á Jensens böfhus í gær og fengum okkur að borða, með það í huga að þetta væri sennilega í síðasta sinn í lengri tíma sem við komumst út, nema að þetta dragist endalaust! Svo fór ég í afmæli til Hjördísar og gúffaði í mig kökur og annað góðgæti. Ég fékk sannarlega að finna fyrir því þegar ég fór að sofa, því þá kom brjóstsviði! En kökurnar voru góðar....:-D

Þetta verður sem sagt desember barn, það er nokkuð ljóst!

8 Comments:

At 11:32 PM, Blogger Óli said...

Börn sem fæðast í desember eru oft talin vera með eindæmum gáfuð og með sérstaklega fallega beinabyggingu. Sjáðu bara mig ; )

 
At 10:29 AM, Blogger Ásta said...

Hehehe, mikið er ég glöð að heyra það:-)

 
At 1:46 PM, Anonymous Anonymous said...

En Óli þú ert milli jóla og nýjárs - ég er ekki viss um að Ásta sé að stefna að því! ;)

 
At 9:02 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Ásta mín

fylgist spennt með :)

Kv. Erna

 
At 11:40 PM, Blogger herborg said...

Halló, núna fer aldeilis að styttast í prinsessuna. Ég fékk mér indverskan mat rúmum sólarhring áður en ballið byrjaði hjá mér....ef þú vilt tips!hehehe

Gangi ykkur vel og hlakka til að fá fréttir:)

 
At 12:15 AM, Blogger Óli said...

Pálína - ekki eyðileggja. Desemberbörn, ekkert á milli jóla og nýárs e-ð. Allir sem fæðast í desember eru úber. Hvort sem það er 1. eða 24. eða nú bara 28. eins og sjálfur. Gleðileg jól.

 
At 12:48 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég er svo spennt að fylgjast með barnalandssíðunni að gleymi alltaf að kíkja hingað. Það er greinilega allt að gerast hér ;)
Gangi þér vel á lokasprettinum!

Bestu kveðjur

 
At 11:26 AM, Blogger Ásta said...

Hún verður jafn fullkomin og þú Óli, engin spurning! :-)
Gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með!
Fyrst að sveskjurnar klikkuðu, ætti ég kannski að reyna indverskt;)

 

Post a Comment

<< Home