Sunday, September 10, 2006

Þar sem ég á svo marga dygga lesendur sem kommenta í gríð og erg, ætla ég að henda inn einni færslu eða svo....:S

Jákup fór heim til DK í gær, og var svo óheppinn á leiðinni að bakpokanum hans var stolið á lestarstöðinni í Köben. Í bakpokanum voru mörg verðmæti, t.d. myndavélin okkar, extern harður diskur fullur af tónlist, 20 DVD osvfrv. Við erum svo ógeðslega svekkt að því er ekki hægt að lýsa! Nú er bara að sjá hvort við fáum eitthvað úr tryggingunum:( En tilfinningalegt gildi margra þessara hluta var mun meira en peningalegt, og því er ekki hægt að bæta það upp með peningum. Við hughreystum okkur þó á því að þetta hefði getað verið mun verra!

Ég er heima hjá mömmu yfir helgina. Pabbi fór austur að skoða Kárahnjúka og ég fæ að sofa í hans rúmhelming á meðan:) Við mamma vorum að passa Tedda í nótt, og hann lék á alls oddi hérna í morgun. Hann hefur erft stríðnina frá pabba sínum:-)

Það er vika í brottför, og ég er með mörg áform um að hitta alla mögulega þessa viku. Það er þó ekkert nýtt;)

4 Comments:

At 3:20 PM, Anonymous Anonymous said...

ÖMURLEGT :( það er hræðilegt að lenda í þessu. Ohhh öll mín samúð til ykkar varðandi þetta mál :(

En ég les alltaf þó ég kommenti ekki alveg í hvert sinn. Finnst orðið vandræðalegt að vera oftast fyrst að kommenta á öll blogg sem ég skoða... Ég er ekki svona mikið í tölvunni........ :/ (vona ég!)

Helga Dröfn

 
At 5:01 PM, Blogger herborg said...

sorry að ég kommenti aldrei:) ég skal reyna að vera duglegri......

 
At 6:10 PM, Blogger Ásta said...

Hehehe tókst mér að spila inn samviskubit hjá fólki:) Glæsilegt!

 
At 1:44 AM, Anonymous Anonymous said...

Heldur betur! Núna þorir enginn annað en að kommenta ;)
Þessir tveir mánuðir hafa verið ótrúlega fljótir að líða, það verður skrítið að hafa þig/ykkur ekki á landinu til að hóa í í spil eða mat. Teddi á líka eftir að verða voða hissa þegar hann fær ekki að sjá þig flesta daga - alveg búinn að átta sig á því að hann getur vafið þér utan um litla fingurinn á sér!

 

Post a Comment

<< Home