Í gær vaknaði ég kl.5 vegna bakverkja og ákvað að pissa fyrst ég væri vöknuð. Þegar ég lagðist upp í aftur til þess að sofa áfram, ákvað litla krílið að það væri kominn dagur og tími til morgunleikfimi! Eftir hálftíma hnoð gat ég engan veginn sofnað aftur, og fór því bara fram að læra:-D Svo fór Jákup í skólann, og ég setti í tvær þvottavélar, þreif baðherbergið, fór í bað og margt fleira. Kl.10 hringdi Jákup og sagði kennarann ekki hafa mætt, og spurði hvort við ættum ekki að fara út og borða lunch! Nammmmm.... Það þurfti ekki að spyrja mig tvisvar:Þ
Eftir matinn fórum við í Silvan (byggt og búið) og keyptum nýtt loftljós, ljós í baðherbergið, gólfmoppu og fleira, og fórum svo heim að taka til. Nema að við ákváðum að skreppa líka út og kaupa málningu fyrir stofuna, því við erum búin að horfa á einn vegginn í 1 og hálft ár og andvarpa yfir því að þurfa að mála hann!
Í lok dagsins vorum við búin að gera eftirfarandi:
Mála 3 veggi, rífa niður hillur, smíða nýja hillu, þrífa drulluna ofan á eldhússkápunum, ryksuga og þvo svefnherbergið, hengja upp tvö ljós, snúa stofuborðinu, skipta um sturtuhengi og elda mat:-)
Kvöldið endaði með að við horfðum á Walk the line. Frábær mynd!
Ég held að ég hafi aldrei á ævinni afrekað jafn mikið á einum degi eins og í gær!! Og bara róleg, ég fór ekki af stað í öllum hamaganginum, stelpan er ennþá í bumbunni;-)

5 Comments:
Sjæse hvað þú ert orkumikil kona! Næst þegar þú færð svona orkuskot og þörf til að gera fullt af hlutum..komdu endilega yfir á Tietgens Alle 70, 1sal..get fundið fullt af verkefnum fyrir þig;)
Úff maður... þú verður að passa að koma þér ekki af stað í öllum hamaganginum...
hihi, ég er hætt! En er voða fegin að vera búin með þetta allt saman áður en krílið kemur;)
Helvíti eruð þið dugleg, ég sem nenni ekki einu sinni að vaska upp!
Bestu kveðjur úr Mávahlíðinni, Teddi spyr oft um þig :)
Kristinn
Talandi um uppvask.....ég er demonstratívt að bíða eftir að Jákup vaski upp....það eru nú liðnir 3 dagar!:)
Ég sakna litla kúts mikið mikið! Kysstu hann í ræmur frá mér:-D Er enn að bíða eftir að sjá ykkur poppa upp á skype...hmmmmmm
Post a Comment
<< Home