Thursday, September 14, 2006

Róleg á hormónunum kona!

Já, ég tel mig hafa sloppið nokkuð vel hingað til með hormónaflipp, en þá ákvað líkaminn að gera uppreisn (eða hugurinn kannski)! Ég er búin að vera svakalega touchy síðustu 2 daga og ýmist fokið í mig af minnsta tilefni eða farið að grenja yfir engu. Og það eru 2 dagar í að ég þurfi að kveðja alla. Ég er ekki viss um að ég höndli meiri grát:( Kannski er þreytan að segja til sín eftir sumarið, en ég væri til í að hætta þessu núna.
Ég hef verið að tala við vinkonur mínar í Odense á msn og það eru ægileg plön fyrir næstu vikur. Árshátíð, göngur og partý. Og ég verð bara pirruð yfir öllum þessum látum! Vill bara sofa næstu 2 vikurnar eða svo, ekki þykjast vera ofur hress:( Ásta Pirringur Theodórsdóttir! Eru til töflur við svona?? Ég ætti kannski að kynna mér það hérna á síðustu vaktinni á geðdeild?

J fór að kynna sér bílalán, og fyrstu tölur voru sjokkerandi. Kannski ættum við að halda áfram að hjóla þrátt fyrir allt?:) Hvenær er maður orðinn fullorðinn? Verður maður að eiga bíl til þess?

Og Tryggingastofnun Ríkisins er formlega í mínum huga skítapakk og kúkaladdar. Vá hvað mér finnst leiðinlegt að eiga við þessa stofnun. Þeir reyna að gera mér lífið leitt.

Er eitthvað jákvætt í þessu öllu saman?? Já, það er von að þið spyrjið.. Ég ætla í sund á morgun með Pálínu og Tedda stríðnispúka. Og svo er pabbapizza a la Teddi í kvöldmatinn. Það er kannski meðalið sem ég þarf?:)

8 Comments:

At 12:54 AM, Blogger herborg said...

Þú átt sko skilið að slappa af eftir sumarið. Þú ert algjör hetja að vera búin að vinna svona mikið! Það kemur engum við ef þú nennir ekki í göngu eða partý:)

Ég skil þig vel með að kvíða því að kveðja. Það er alltaf erfitt, hvað þá ef maður á lítinn sætan frænda og er með hormónana á fullu!

Sjáumst áður en þú ferð:)

 
At 8:23 AM, Blogger Ásta said...

Nohhh, takk:)

Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa á þessum ókristilega tíma er, að ég var vakin kl.4 til þess að fara í konsúlt, og var að koma til baka. Get ekki sofnað strax:( Þar fór sú nótt!

Sjáumst:D

 
At 6:45 PM, Blogger herborg said...

viltu koma á trúnó?? ég var að vonast til að þú myndir svara mér þannig.....heheheheh.......

 
At 7:07 PM, Anonymous Anonymous said...

Tryggingastofnun er sko ekkert lamb að leika sér við. Skil þig vel að þú sért pirruð á þeim ansk#$%

Annars máttu vera þreytt og pirruð. Held að flestir yrðu það eftir svona vinnutörn - ófrískir eða ekki :)

Helga Dröfn

 
At 9:39 PM, Blogger Ásta said...

Þetta var óvenjulega trúnaðarlegt hjá þér Herborg, ég vissi varla hvernig ég átti að bregðast við, hahahaha:-)

Ég rúnta við hjá ykkur báðum á morgun, sjáumst þá:)

 
At 12:37 AM, Anonymous Anonymous said...

Ásta? hvenær kemuru aftur heim? Við erum farin að sakna þín hérna í Óðinsvéum, hálf handalaus án þín!! Þó að þú sért busy verður samt líka að hitta okkur (geri þig ennþá pirraðari hehe)
Knús Helena

 
At 1:53 AM, Blogger herborg said...

Svona get ég nú verið "mjúk" ásta:) hehehe...... ég leyni á mér! En ég gríp bara til þess á örlagastundu:) hehehehe

 
At 10:25 AM, Anonymous Anonymous said...

verður gaman að sjá þig þegar þú kemur til odense, spennó að sjá bumbuna líka. Hef heyrt ýmsar sögur af hormónagleðinni hjá ófrískum konum og ég held að þessi grátur og pirringur sé ekkert til að hafa áhyggjur af, en örugglega frekar leiðinlegt. Þarf svo sem ekki að vera óletta til að maður verði touchy, ma og pa nýfarin til íslands eftir að vera í heimsókn og þá er sko ekki langt í tárin dagana á eftir... kveðja heiðdís

 

Post a Comment

<< Home