Saturday, September 23, 2006

Jæja, það er sennilega kominn tími til að skrifa eitthvað:) Ég er komin heim til Odense, og ferðin gekk áfallalaust fyrir sig. Ég fékk það mikinn bjúg á hendur og fætur að ég þekkti varla sjálfa mig. Það var æðislegt að sjá Jákup á lestarstöðinni -og fá hjálp með farangurinn!
Veðrið er búið að vera með eindæmum gott síðan ég kom, 20-24 stiga hiti! Þannig að ég gat dregið fram sumarfötin aftur. Og svo er ég búin að láta skipta um hnakk og handföng á hjólinu mínu, og fá körfu aftan á. Þannig að ég er hæstánægð með að hjóla eitthvað áfram:) Það kemur svo annað hljóð í skrokkinn þegar það byrjar að kólna og bumban stækkar! Við erum ekki farin að skoða bíla enn, enda hefur verið nóg að gera þessa viku. Ekki síst er íbúðin svo hræðilega skítug eftir langa fjarveru okkar, að við erum búin að taka eitt og annað í gegn:-S Svo erum við líka svolítið eftir á í skólanum...en það reddast:) Ég er í Móðir og barn blokkinni og finnst hún að sjálfsögðu mjög spennandi! En ég er líka að læra um allt sem getur farið úrskeiðis á meðgöngu og í fæðingu og þakka því fyrir hverja viku sem líður af minni meðgöngu:)
Við Jákup fórum í góða veðrinu í dag og keyptum okkur lampa og borð í stofuna. Einnig erum við að spá í að bæta pullu við sófasettið. Alltaf gaman að nota peninga, hehe.

2 Comments:

At 7:23 PM, Anonymous Anonymous said...

Velkomin heim! Gott að allt gekk vel.

Skil þig vel með "vondu" sögurnar. Þar fara skelfilega fyrir brjóstið á mér þó að ég sé ekki ófrísk - hvernig verður það þegar ég verð ófrísk óbooooy

Þokkalega sem það er gaman að eyða peningum - verst eftir á, þegar manni vantar þá nauðsynlega. heheheh

Bestu kveðjur í bili, Helga Dröfn

 
At 7:11 PM, Blogger Ásta said...

Takk:)
Mér finnst reyndar líka gott að hafa peningana á reikningnum mínum, þannig að þetta helst ekki alveg i hendur!:o

 

Post a Comment

<< Home