Tuesday, June 06, 2006

Við erum komin með íbúð fyrir sumarið! Jibbý! Og gæti ekki verið hentugra eða á betri stað:) Íbúðin er á Eggertsgötu, og ég get labbað í vinnuna. Svo erum við rétt hjá bænum og honum Tedda mínum og mömmu hans og pabba:-D
Það er að styttast í allt. Heimsókn frá mömmu hans Jákups og pabba, Kristins og co, og svo heimkomu! Nú er ég sko spennt!
Fyrsta skoðun hjá ljósmóður er á morgun, spennó. Jákup var að hjóla af stað á næturvakt, þannig að hann verður ferskur kl.9 á morgun hjá ljósmóðurinni;) hehehe En hann vill auðvitað ekki missa af neinu, superdaddy;)

2 Comments:

At 12:56 AM, Anonymous Anonymous said...

Frábærar fréttir!! Er orðin hrikalega spennt að sjá ykkur og bumbuna :D og ekki verður verra að hafa ykkur í næsta húsi það sem eftir er sumars!

 
At 3:07 PM, Blogger Ásta said...

Nú er ég svo spennt að ég á erfitt með að einbeita mér að lestrinum. Sit bara og dreymi dagdrauma!

 

Post a Comment

<< Home