Við fórum í fyrsta sinn til ljósmóður í morgun og fengum að heyra skýran og hraðan hjartslátt:) Hún mældi líka blóðþrýstinginn hjá mér sem var 91/50! Ekki skrítið að mig skuli svima öðru hverju:-S
Ég er svo einbeitingarlaus þessa dagana að ég kem litlum sem engum lestri í verk. Ég stend mig að því að sitja og dreyma dagdrauma í staðinn fyrir að lesa um lifrarsjúkdóma. Svona hlakkar mig til að koma heim, byrja að vinna og hitta alla! Og svo finnst mér þessi meðganga líða voða hægt! Ég er orðin hundleið á að heyra að þetta eigi eftir að ganga svo hratt. Kristinn hitti höfuðið á naglann í fyndnu myndaseríunni sinni. KOMA SVO, vaxa og dafna!

3 Comments:
Innilega til hamingju með bumbubúann, elsku Ásta. Hlakka til að sjá ykkur í sumar!
Kveðja, Kaja frænka.
P.s. njóttu þess að vera ófrísk, þetta er frábært, þú átt skemmtilega tíma framundan!!
þetta líður voða VOÐA hratt, trúðu mér! bara passa sig að hafa alltaf nóg fyrir stafni:)
Ég var að reyna að svara um daginn en tölvan var eitthvað að stríða mér;)
Takk Kaja! Ég hlakka mikið til að hitta ykkur öll og hafa nógan tíma svona einu sinni;)
Ég er strax farin að sjá kostina við að geta borðað meira t.d. :) Og þetta er ekkert svo lengi að líða þrátt fyrir allt, það verður sko nóg að gera þangað til!
Post a Comment
<< Home