Lærdómsgenið hjá mér er eitthvað alvarlega gallað þessa dagana! Ég á svo erfitt með að setjast niður og einbeita mér, en þvinga sjálfa mig öðru hverju. Þetta hefst allt saman!
Við fórum í bæinn í dag og skoðuðum barnavagna og rúm og slíkt, til að mynda okkur skoðun á því hvað við viljum. Þegar við komum tilbaka í haust verður mikið að gera í bæði skóla og vinnu (til að vinna mér inn réttinn til að fá dagpeninga!) þannig að það er ágætt að vita nokkurn veginn hvað við viljum. Svo væri ekki slæmt að bera saman við úrvalið á Íslandi og verðið:)
Ég bíð spennt frétta af einni vinkonunni sem er komin á steypirinn. Hún er sett 17.júní en er búin að vera með samdrætti síðustu daga og aflýsti hádegismat með okkur vinkonunum í gær vegna spítalaferðar. Það verður gaman að fá að sjá eitt svona glænýtt:-) Maður verður alltaf hissa á því hvað þessi kríli eru lítil fyrstu dagana -NEMA þegar ég var viðstödd fæðingar á fæðingadeildinni í vetur! Þá var ég alltaf í sjokki yfir því hversu stór börnin voru sem komu út um þetta litla op!!!:-S Það fer allt eftir samhenginu sjáiði til;)

3 Comments:
HAHAHAHAHAHAHAHA Já allt er háð aðstæðum :)
HD
Híhí já það er nú ótrúlegt hvað konur koma stórum krökkum út um þetta litla gat, en vá hvað þessi krútt eru nú samt lítil, man fyrstu vaktina á barnagjörgæslu, 12 marka stelpa sem var nú bara stórt miðað við sum börnin þarna en mér fannst þetta svo lítið enda voru 2 yngstu bræður mínir 17 og 18 merkur svo þeir voru nú bara fullorðnir miðað við þetta barn! Gleðilegan 17.júní kv heiðdís
Já þessi grey eru oft ekki stór:( Stundum ekki nema 2 og hálf merkur! En ég er að hugsa um að hætta að borða undir lokin á meðgöngunni í von um að eignast í mesta lagi 3kg kríli:-)
Gleðilegan 17.júní!
Post a Comment
<< Home